Eimreiðin - 01.07.1944, Blaðsíða 31
EIMIiEIÐlN
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
175
í*essa dagana er verið að skera úr því, hversu sterk er hin
innri eining þess og samtakamáttur. Alþingi hefur oft, þeg-
ar á reyndi, sýnt, að það geti staðið saman. Síðasta og merk-
asta dæmi þess er afgreiðsla þess á fullveldismálinu og stofn-
un lýðveldis á íslandi. Vonandi bregzt ekki eining alþingis
°g samtakamáttur nú um lausn, sem að haldi komi, út úr
yfirvofandi ógöngum. Þessi þúsund ára gamla stofnun má
ekki glata virðingu landsmanna og trausti. Alþingi að Þing-
völlum er í meðvitund þjóðarinnar merkasta stofnunin í
s°gu hennar. Enn eru margir, sem mundu vilja sjá alþingi
aftur á ÞingvöIIum. Hugmyndin er lífseig. í nýútkomnu hefti
timaritsins „Straumhvörf“ tekur séra Sigurbjörn Einarsson
undir hana í forustugrein, sem hann nefnir ALÞING Á
í*INGVELLI. „Löggjöf lýðveldisins á að skapast á Þingvelli,“
Segir séra Sigurbjörn í grein sinni. „Enginn staður landsins
skuldbindur eins og hann. Hvergi verður sú þinghelgi, sem
l>ar mundi verða. Þinginu er þá alls varnað, ef það gæti
ekki haldið virðingu sinni á slíkum stað,“ bætir hann við.
Endurreisn alþingis á Þingvöllum hefur oft verið rædd, síðan
t jölnismenn hófu máls á því, að þar væri þess eina og sjálf-
Sagða heimkynni. Hugmyndin kann að eiga langtíland með að
omast í framkvæmd, en hún lifir áfram. Alþingi í Reykja-
''k má hvorki bregðast sjálfu sér né þjóðinni. En bregðist
|)að, fær þjóðin vafalaust tækifæri til að sýna með nýjum
’osningum, hvort eldhuginn og samtakaviljinn frá 17. júní
Var aðeins stundarfyrirbrigði eða hvort henni er alvara með
bjarga sjálfri sér út úr aðsteðjandi öngþveiti vaxandi
' erðbólgu, atvinnuhruns og efnahagsrýrnunar. Og hún mun
sýna, að henni er alvara með björgunartilraunina. Andinn
f rá 1 ry
. A7. juní lifir áfram, sem betur fer, og mun vonandi
s,gra.