Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1947, Side 28

Eimreiðin - 01.10.1947, Side 28
252 VESTUR-ÍSLENZK MENNING BIMREIÐIN gamla ættlandinu og stofnþjóðinni þar. Hvorttveggja styrkir okk- ar sérstöku menningu hér vestra, sem bæði þeim á Islandi og okkur er svo annt um að varðveita. Nú hef ég í nokkrum dráttum reynt að gera grein fyrir þessari menningu, og benda á vegu til þess að lialda henni við. Með tím- anum mun sumt af því há-íslenzka falla niður og gleymast og annað hérlent fylla skarðið. Að sumu leyti hefur þetta nú þegar skeð. Það er tap og hlýtur að valda sársauka, en ætti um leið að hvetja menn til enn meiri samtaka um að hlúa að því, sem eftir er og hægt er að varðveita. Við megum aldrei gleyma því, að framtíð vestur-íslenzkrar menningar er undir okkur sjálfum komin og geymist aðallega > því, sem við erum og einkum því, sem við gerum, ekki sem Islend- ingar, heldur sem borgarar dvalarlandsins. Ef það verk er gott og til þjóðþrifa, þá styrkir það þá efablöndnu í okkar liópi, sem hætt- ir við að vilja kasta öllu íslenzku í burt, og um leið kemur það annarra þjóða mönnum til að fara að grennslast eftir, livað það sérstæða sé, sem við eigum. Það má koma með dæmi, sem geta sýnt, að menn af íslenzkum ættum, er lítið eða ekkert kunna > íslenzku, hafa með góðum hæfileikum og óþreytandi dugnaði komið svo miklu góðu og nytsömu til leiðar, að þeir hafa vakið athygli, ekki einungis á sér, heldur og þjóðflokki sínum, og eru þeir þá um leið að gera mikið til þess að tryggja framtíð vestur* íslenzkrar menningar. Sú menning er heilbrigð og holl. Hún er auðsæ og þróttmikih og hingað til ber mjög lítið á hnignun. Hún er örvandi og gerir okkur að betri borgurum í þessu landi. Islenzka blóðið blandast, tungan mun gleymast, en þjóðernistilfinningin lifir í hjörtum okkar. Við viljum geyma hana þar, og af því hún á rætur að rekja til dýrmætra fjársjóða, verður hún meðal, sem veitir okkur kraft og hugrekki í lífsbaráttunni á þessum erfiðu og örlagafull'1 tímamótum.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.