Eimreiðin - 01.10.1947, Blaðsíða 41
EIMREIÐIN
GIRNDARAUGA Á SVALBARÐA
265
ÞjóS, sem ekki hefði neinna hagsmuna að gæta á Spitzbergen.
Og svo kom ráðstefnan saman 30. júlí 1914. En þar urðu lögleg
forföll, — því heimsstyrjöldin skall á fáum dögum síðar.
norðmenn fá svalbarða.
Norska stjórnin liafði góðan frest til þess að hugsa þetta mál
og komst að þeirri niðurstöðu, að fyrirkomulagið með þrívelda-
nefndina væri ekki heppilegt, en mundi leiða af sér misklíð og
málavafstur. Einfaldast væri að Norðmenn einir stjórnuðu eyj-
unum, og þá skoðun studdi ekki sízt Wedel-Jarlsberg, sendiherra
þeirra í París, sem hafði leitað hófanna um þetta mál við ýmsa .
forustumenn samherjanna. Nú var Wedel-Jarlsberg beðinn um
að flytja málið í liinu nýja formi við æðsta ráð samherjanna, hina
»fjóra stóru“, sem þá voru Clemenceau, Lloyd George, Wilson
°g Orlando. Rússar voru þá utangarna og ekki til kvaddir. Hinn
9. febrúar 1920 var samningurinn um yfirráð Spitzbergen undir-
ritaður í París af fulltrúum Noregs, Bandaríkjanna, Bretlands,
krezku samveldislandanna, Indlands, Danmerkur, Frakklands,
Italíu, J apans, Hollands og Svíþjóðar. Efni samningsins er í stuttu
máli þetta:
Norðmenn hafa fullveldisrétt yfir Spitzbergen, þ. e. stóreyj-
unum Vestur-Spitzbergen og Norðausturlandinu, ásamt sinærri
eyjum í kring og Bjarnarey. En ýmiskonar fyrirvari er á þessu
fullveldi. Allar þjóðir, sem hafa undirskrifað samninginn eða
síðar gera það, eiga jafnan rétt til að reka þar atvinnu, og Norð-
uienn skuldbinda sig til að gæta þessa ákvæðis í námulögum
Þehn, sem þeir setja á Spitzbergen. 1 9. gr. samningsins er ákveðið
að aldrei megi setja upp flotastöS á Spitzbergen, né heldur byggja
bar nokkur hernaSarvirki. PaS er tekiS fram, aS eyjarnar megi
aldrei notast í þágu liernaSar.
1 friðarsamningnum milli Rússa og Þjóðverja í Brest-Litovsk,
í uiarz 1918, var ákvæði um, að báðir aðilar skyldu vinna að því,
Spitzbergen yrði yfirráðalaus almenningur sem fyrr, og undir
eins eftir að Parísarsamningurinn hafði verið gerður, mótmæltu
Hússar honum við ýmsa af þeim, sem höfðu undirritað liann. Og
* janúar 1923 mótmælti rússneski utanríkismálaráðsstjórinn hon-
Um við norsku stjómina í sambandi við skipun þá, er Norðmenn
höfðu gert á námugreftinum. tJt af þessum mótmælum hófust