Eimreiðin - 01.10.1947, Qupperneq 66
290
SÓL OG SUMAR Á HÚNAFLÓASTRÖNDUM EIMREIÐIN
þrenningarfjóla spretta í túninu. Er sennilega slæðingur þar, en
þessar jurtir eru fáséðar á þessum slóðum. Vísuðu þeir feðgar
okkur á þetta allt. Mýraber höfðu þeir fundið í Sunnudal.
Daginn eftir fórum við á jeppa frá Svanshóli út að Ásmundar-
nesi og gengum þaðan að Reykjarvík. Þar er lítilsháttar jarðylur,
en mun liafa verið meiri fyrrum. Þarna út með firðinum er næð-
ingasamt og snögglent, en talsvert sjávargagn. Mýrafinnungur
og ígulstör eru aðaljurtir mýranna. Skarfakál er víða í 6jávar-
klettum og eyjum. Blákolla vex víða. Akurarfa og freyjubra
sáum við í túni. Litla dvöl höfðum við í Reykjarvík. Kom Jón
í Kaldbaksvík brátt á trillubáti að sækja okkur. Tekur nú lands-
lagið að breytast, er út eftir kemur. Fjöllin hækka, og láglendið
verður mjó og grýtt ræma. Kaldbakshorn er hátt og lirikalegt,
reglulegt Vestfjarðafjall, með hamrabeltum og urðum. Kald-
baksvík er lítil. Ganga fjöll niður í sjó að lieita má báðu megín-
Stuttur dalur með bröttum lilíðum — sem ögn lækka innst —
gengur inn af víkinni. Dálítið stöðuvatn eða strandlón er þar
milli bæjanna tveggja, Kaldbaks og Kleifa. Þar er „stórlirein-
lega-fallega-Ijótt“, sagði Þorvaldur Thoroddsen. Okkur fannst
viðkunnanlegt, enda var blíðuveður, en Þorvaldur lenti í óáran
og illviðrum á þessum slóðum í miðjum ágúst 1886. Segir hann
stóra skafla liggja víða í Bjamarfirði og Kaldbaksvík, þar sem
nú er alautt og gróið. „Kröpp eru kaup, ef lireppi ek Kaldbak, en
læt akra“, sagði önundur tréfótur forðum. En veiðiföng vorU
mikil, og enn stunda Kaldbaksmenn sjóinn.
Rétt hjá Kaldbaksbæ er sumarhús, sem þýzkur maður reisti-
Er þar blómagarður, og einnig í Kaldbak. Þrífast í þeim bH’
margar íslenzkar og erlendar skrautjurtir. Við hlíðarræturnar
eru stórgrýttar urðir, hálfgrónar grasi, Ijónslappa og lyngi. J)ar
er líka talsvert burknaland. Sáum við þúsundblaðarós, skjald-
burkna, tóugras, skollakamb, þrílaufung, þríhyrnuburkna
dílaburkna. Birkikjarr er í norðurhlíðum dalsins. Vex þar miki^
af óvenju stórvöxnum skjaldburkna og skollakambi. Þar er lík3
krossjurt, hárdepla og jafnar, en gróskulegar aðalbláberjalyng6
brekkur á milli, enda mun vera snjóþungt. Gulvíðir vex í pollum
við ána. Þar er líka alurt og sóldögg víða í mýrum, enda mun
jarðyls gæta eitthvað.
Um kvöldið fylgdi Jón á Kaldbak okkur á hestum inn undir