Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1947, Side 68

Eimreiðin - 01.10.1947, Side 68
292 SÓL OG SUMAR Á HÚNAFLÓASTRÖNDUM EIMREIÐIN lieyskaparlandið. Árdegis héldum við fram á dalinn í grasaferð. Fór Bjami með okkur, ásamt Lofti frænda sínum og tveimur elztu sonum. Söfnuðu þeir allir jurtum í ferðinni. 1 kjarrinu vaxa margar reynihríslur, og friðar Bjarni þær. ICrossjurt, hjarta- tvíblaðka, eggtvíblaðka, jafnarnir þrír, hárdepla, gullstör, skolla- kambur, þrílaufungur og þríhyrnuburkni vaxa líka í kjarrinu, og þar sýndi Bjarni okkur ofurlitla sortulyngskló. Ekki skortir fjandafælu né helluhnoðra. Er liann gömul lækningajurt, sbr. Skuggasvein, og sumir telja hann öflugt uppsölumeðal. Eskið stinna, sem notað var til fágunar forðum og mörg örnefni eru kennd við, vex víða þarna norðurfrá. I leirbornum, snjósælum urðum og rökum giljum eru víða forkunnar fagrir, knéháir brúsk- ar þúsundblaðarósarinnar og fleiri burkna, einkum skjaldburkna, dílaburkna og stóraburkna. Við gengum upp úr dalbotninum, fram með fossóttri á. Taka brátt við gróðurlitlar urðir og melar. Fjallhæra, rjúpustör, laukasteinbrjótur, jöklasóley og tröllastakk- ur eru lielztu fjallablómin. Er talsvert fjölgresi í Asparvíkur- og Kaldbaksdölum. Um kvöldið ætluðum við að ná í póstbátinn. En ekki vildi liann bægja á sér vegna lítils vélbáts, svo að Bjarni flutti okkur alla leið til Kaldrananess og útvegaði okkur gistingu hjá konu Þor- steins kennara, systur Jóns heitins skálds frá Ljárskógum. Kald- rananes er yzt á nesinu, sunnan Bjarnarfjarðar. Er þar næðings- samt, en talin eru þar sæmileg liafnarskilyrði. Frystilxús er í bygg- ingu og mikill liugur í mönnum að fá gerða góða bátaliöfn. Virð- ist talsverður metingur og keppni milli Kaldrananess og Drangs- ness. Er Drangsnes eldra í bettunni, og þar er fyrir frystihús og talsverð bafnarmannvirki. En í Bjarnarfirði er betra ræktunar- land að styðjast við, og jarðhitinn verður mikils virði, ef þorp rís upp á Kaldrananesi. Innan við Kaldrananes er fjörðurinn grunnur, með mörgum hólmum. Þar eru sjóflæðar og allstórar eyjar. Á sjávarflæðunum vex mikið af sjávarfitjungi og skriðlín- gresi, en lágarfi innan um og engjavöndur í þúfum. Þroskalegt skarfakál er víða í klettum og lieima við bús. Ljósatvítönn og tvíbýlisnetla vaxa líka við húsin — og húsapuntur í kirkjugarð- inum. Vorperla er algeng, einkum með fram veginum. Skolla- ber vaxa bér og livar við kletta, en víðast óblómguð, bæði i Steingrímsfirði og Bjarnarfirði, nema inni á Kaldrananesbjöll-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.