Eimreiðin - 01.10.1947, Síða 69
EIMREIÐIN sól og sumar á húnaflóaströndum
293
ura. Þar voru þau í fullum blóma. Melasól er algeng, allsstaðar
með grængulum safa. Lítilsliáttar kjarríeifar eru í hjöllunum.
en allsstaðar er sama sagan, minni gróður sunnan fjarðarins en
norðan. Rjúpustörin vex liér niður að sjó. Hjónagras er fágætt,
en hin brönugrösin algeng allsstaðar hér nyrðra.
Hinn 9. ágúst héld-
um við félagar gang-
andi yfir hálsinn eða
heiðina til Drangsness,
en fengum léðan dreng
og hest með flutning-
inn. Er fyrst bratta
brekku upp að fara, en
síðan tekur við lieiða-
landið með mýrum,
tjörnum og urðarásum
~~ allbreitt milli brúna.
Norðan undir Bæjar-
felli er allstórt vatn,
*neð klófífu, hengistör,
öóastör og fleiri stör-
nm umhverfis. Lófótur
°g mógrafabrúsi eru
algengir í tjörnunum.
^íða er þar horblaðka
°g gildir mýrakólfar
hennar í vatninu. Hef-
nr seyði þeirra margan
magaveikan læknað.
haejarfell gnæfir yfir Kerlingin frœga á Drangsnesi.
heiðaflákana, svipmik-
bæði að norðan og sunnan. Eftir drjúga gönguferð komum við
niður að Drangsnesi. Hressir af kaffi og pönnukökum lijá Jóni
Pétri héldum við á gistihúsið nteð farangurinn og síðan út í
góða veðrið og gróðurinn. Drangsnes stendur undir Bæjarfelli.
Eru háir, grýttir bakkar fyrir ofan, en útsýn er opin yfir Stein-
grímsfjörð. Grímsey liggur örskammt undan landi, og er höfuð-
Prýði Drangsness, ásamt kerlingunni frægu. Kerlingin er hár,