Eimreiðin - 01.10.1947, Qupperneq 90
eimreiuin
SONUR GULLSMIÐSINS Á BESSA-
STÖÐUM. Bréf til Gríms Thomsens
og varSandi hann 1838—1858. Finn-
ur Sigmundsson bjó til prentunar.
Rvík 1947 (HlaSbúS).
Grími Thomsen hefur, á síðari ár-
um, verið auðsýndur margskonar
eómi, fyrst og fremst með hinni fögru
og vönduðu útgáfu Snæbjarnar Jóns-
sonar á ljóðmælum skáldsins 1934.
Tíu árum síðar ritaði frk. Thora Frið-
riksson bók um skáldið (1944). Fleira
hefur verið um hann ritað. Sem eitt
af höfuðskáldum íslendinga hefur
Grímur stöðugt farið vaxandi að áliti,
þann mannsaldur, sem liðinn er síðan
hánn dó, og það að maklegleikum.
Að vísu kunnu nokkrir menn fljótt
að meta hann, má þar nefna Björn
Jónsson ritstjóra og dr. Jón Þorkels-
son, meðal annarra. En almennt varð
hann ekki viðurkenndur, sem afburða-
skáld, fyrr en nú, á þessari öld, og
enn sækir hann stöðugt á. Sýnir það
bezt, hvert afburðaskáld hann var.
Hinn vandvirki og ágæti fræðimað-
ur, Finnur Sigmundsson landsbóka-
vörður, gaf fyrir nokkru (1946) út
bréf Ingibjargar Jónsdóttur, móður
Grím8 Thomsen, og nefndi bókina:
Húsfreyjan á Bessastöðum. Bók þess-
ari var, að vonum, vel tekið, enda
varpa hréf þessarar gáfuðu konu
björtu ljósi yfir æskuheimili skálds-
ins og margt það fólk, er hann um-
gekkst mcst. Og nú er komin önnur
bók, frá hendi sama útgefanda, þessi
bréf, rituð af Grími sjálfum og öðr-
um á árunum 1838, er Grímur sigldi
til háskólanáms og til ársins 1858, er
Grímur var 38 ára gainall orðinn.
Bókin hefst á stuttum formála út-
gefanda. Taka þá við bréfin, 79 að
tölu, á bls. 7—224. Loks er nafna-
skrá og efnisyfirlit. Nokkrar myndir
og handritasýnishorn eru í bókinni.
Pappír og allur frágangur er góður. —
Hvert bréf hefst með einkunnarorð-
uin, teknum úr bréfinu, þá er stuttur
formáli, en á eftir bréfinu eru glögg-
ar og greinargóðar skýringar. Virðist
þetta allt gert af hinni mestu smekk-
vísi, nákvæmni og alúð. Eru skýr-
ingarnar mjög ítarlegar og margar
stórfróðlegar.
Það hlýtur ætíð að orka tvímælis,
hversu langt má fara í því að birta
einkabréf, sem fjalla um viðkvæm
fjölskyldumál, jafnvel þótt þeir, sem
ritað hafa bréfin og þau eru rituð til
og um, séu löngu komnir undir græna
torfu. Allt öðru máli gegnir um bréf,
sem varða þjóðfélagsmál, bréf »m
„landsins gagn og nauðsynjar“, skáld-
skap, listir o. s. frv. í flokki slíkra
bréfa eru t. d. bréf Jóns Sigurðssonar
og Matthíasar Jochumssonar. Sonur
gullsmiðsins stendur að vísu jafn-
réttur og gnæfir jafn hátt og áður,
sem skáld og lærður gáfumaður, eftir
lestur þessarar bókar, en ég get ekki
neitað því, að mér finnst ég hafa