Eimreiðin - 01.07.1954, Qupperneq 13
eimreiðin
VIÐ ÞJÖÐVEGINN
165
fyrirsögn svohljóðandi: „Rauðu flöggin eru tekin að blakta ná-
,aegt mikilvægum stöðvum Norður-Atlantshafsbandalagsins. Lönd-
unarbannið hjálpar Moskvu að biðla til íslands." Höfundur grein-
arinnar, Harold Champion, skýrir frá því, nýkominn heim frá
Islandi, að íslendingar verzli nú við Rússa í stað þess að verzla
við Breta áður en þeir lögðu á þá löndunarbannið — og að þessi
verzlun aukist stöðugt. í lok greinarinnar getur höf. komu Ismays
lávarðar hingað til lands í sumar, og hafi þessum framkvæmda-
stjóra Norður-Atlantshafsbandalagsins fallið allur ketill í eld,
Þegar hann sá, hversu sterk ítök Rússar ættu orðið í verzlun
°9 iðnaði hér á landi. Að vísu vilji íslendingar halda allar sínar
skuldbindingar við Norður-Atlantshafsbandalagið, en það geti farið
svo, að löndunarbannið geri þeim það ókleift.
f blaðinu „Grimsby Evening Telegraph" frá 29. júlí þ. á. er
9rein Champions gerð að umtalsefni og honum einkum fundið
Það til foráttu, að hann minnist ekki einu orði á óbilgirni íslend-
lr>ga, sem hafi orðið orsök löndunarbannsins brezka. Á meðan
íslenzka stjórnin neitar að ræða við brezka útgerðarmenn um til-
slökun á fiskveiðitakmörkunum nýju, halda þeir áfram löndunar-
^anninu, segir í greininni. Hér á landi veit enginn til þess, ao
'slenzka stjórnin hafi neitað eða játað að semja við brezka út-
9erðarmenn, því að allir vita, að þeir eru ekki réttir aðilar í
rr,álinu. Auðvitað vilja íslendingar eiga viðskipti við Breta, ekki
síður en aðrar þjóðir. En þegar oss er bannað það, er ekki nema
eðlilegt og sjálfsagt að vér leitum viðskipta annars staðar. Sjálfir
s*kjast Bretar eftir viðskiptum við Rússa og gefa með því öðrum
hjóðum fordæmið. Vér höfum getað selt allar vorar afurðir þrátt
tyrir löndunarbannið og höfum nú samninga um svo mikið magn
f'skafurða á rússneskan markað, að því miður er hætt við, að
vér getum ekki aflað nóg til að uppfylla þá, auk allra annarra,
sem völ er á.
það er því alls ekki víst, að auðvelt sé, úr því sem komið er,
að selja ísfisk til Bretlands, enda þótt jafn auðvelt væri að leysa
löndunardeiluna eins og hr. Jan Class, formaður Fisksölumanna-
sambandsins í Hull, telur, að því er „Daily Mail“ þar í borg skýrir
frá 7. ágúst þ á. En þar segir svo, að á fundi í Rotaryklúbbnum
1 Hull hafi hann látið svo um mælt í erindi, sem hann flutti þar,
að hann gæti leyst deiluna strax yfir einni flösku af víni og með
^rjálsar hendur til samninga, ekkert væri auðveldara.
• brezka blaðinu „The Financial Tirnes" frá 16. ágúst þ. á. er
9rein um minnkandi fiskframleiðslu í Bretlandi og að sumu