Eimreiðin - 01.07.1954, Blaðsíða 73
eimueiðin LIFANDI REIKNIVÉLAR 225
,-Hve margar sekúndur hefur sá maður lifað, sem er 70 ára,
H daga og 12 klukkustunda gamall?“
Tom svaraði eftir hálfrar annarrar mínútu þögn:
„Hann hefur lifað 2.210.500.800 sekúndur.“
„Þetta er rangt, Tom,“ sagði einn þeirra, sem stóðu að til-
raunum þessum með Thomas Fuller. „Talan er of há.“
„Nei, herra,“ svaraði Tom, „talan er rétt, þér gleymið hlaup-
árunum.“
Mennirnir reiknuðu dæmið upp aftur, og kom þá í ljós, að
sekúndur hlaupáranna höfðu ekki verið teknar til greina. Tala
Toms var rétt!
Sagt er, að Thomas Fuller hafi ekki hugsað um reiknings-
þrautir, nema að þær væru lagðar fyrir hann. Ef aðrir komu
ekki heila hans til að starfa, fékkst hann ekki við stærðfræðileg
verkefni.
Fuller hélt innsæisgáfu sinni til dauðadags. Hann dó árið
1790, áttræður að aldri.
Annað undrabarn, sem mikið orð fór af, var Jerediah Buxton,
fæddur árið 1702 í Elmton, Derbyshire á Englandi. Faðir piltsins
var skólakennari, en annaðhvort gat hann ekki kennt honum
eða vanrækti svo uppeldi hans, að drengurinn lærði varla að
skrifa nafnið sitt.
Jerediah varð vinnumaður á bóndabæ. Fór brátt mikið orð
af reikningsgáfu hans og stóð fólk undrandi yfir því, hve fljótur
hann var að leysa hinar erfiðustu stærðfræðiþrautir. Árið 1754
var hann sendur til Lundúna og gekk þar undir rannsókn hjá
Konunglega vísindafélaginu brezka. Hann gat til dæmis á fá-
einum sekúndum sagt hve mörg hveitikorn þyrfti til að þekja
202.680.360 fermílna svæði. Hann hugsaði ekki um annað en
tÖlur og var á öðrum sviðum ekki þroskaðri en tíu ára gamalt
bam.
Meðan hann dvaldi í Lundúnum, var honum eitt sinn boðið
í Drury Lane leikhúsið til þess að sjá hinn fræga leikara Garrick
leika og til þess að horfa á danzsýningu.
Það eina, sem hann mundi, er hann kom úr leikhúsinu, var
hve mörg skref hver danzari hafði stigið á leiksviðinu og hve
tnörg orð Garrick hafði sagt þar.
Buxton var sjötugur, er hann lézt.
15