Eimreiðin - 01.07.1954, Blaðsíða 39
EIMlíEIÐIN
SLAGHARPAN
191
Ég kinkaði kolli. „Já, ég man það, og líka, að þú slóst
hann.“
„Ég hefði betur slegið hann fastar! Honum átti ég það
að þakka, að ég lifði í tíu ár eins og dæmdur maður, sem
bíður dauðans. Ég gat ekki gifzt. Hvernig átti dæmdur
maður að geta beðið konu að játast sér eða heitið henni
eiginorði? En svo hitti ég stúlku, og hún ruddi öllum hindr-
unum úr vegi. Hún vissi allt, hún elskaði mig, hún var ekki
hrædd við neitt, og hún giftist mér-----------.“
Flao hló, svo að skein í hvítar, sterklegar tennur hans.
„Ást okkar rak á flótta allar hrakspár læknisins. Konan
niín varð ófrísk að barninu okkar, barninu mínu.“
Rödd hans titraði af fögnuði, og hann stikaði fram og
aftur um herbergið stórum skrefum, barnalega uppveðraður
af stærilæti og öryggiskennd.
„Þegar við skildumst, Andrés, árið 1939, var ég að setja
mig inn í lögfræðingsstörf föður míns. Ég vann af kappi og
hafði talsverðar tekjur, en þú veizt vel, hvað ég var þó
litið gefinn fyrir þessi störf. Jæja, ég er nú samt ennþá mála-
færslumaður, en allt annað er nú breytt frá því, sem áður
var. Ég hef nú önnur áhugamál en áður, en er þó ánægður
uieð atvinnugrein mína, því að henni á ég það að þakka, að
ég kynntist henni, sem nú er konan mín.
Hún kom eitt sinn snemma morguns inn í skrifstofu
uúna, hafði hlotið að erfðum hús og búgarð í nágrenninu,
flutt þangað og kom nú til þess að leita sér lögfræðilegrar
aðstoðar hjá mér. Þú getur gizkað á framhaldið.
Ég var hálf hræddur um, að henni mundi ekki falla í geð
uð eiga heima í þessari smáborg, því að hún var Parísarbúi,
°g því æði veraldarvön, enda farið víða. 1 París hafði hún
!agt stund á listnám, innan við tvítugt, síðan unnið að leik-
sviðsskreytingum undir handleiðslu leiktjaldamálarans Drou-
hlac. Hún þekkti ekkert til þessa héraðs og hafði hingað
aldrei komið fyrr en henni tæmdist þessi arfur við dauða
frænda hennar, sem varð til þess að við kynntumst.
Hún hefur gerbreytt lifi minu, Serval. Stundum verður
hún annars hugar, mér til leiðinda. En þegar hún sér mig