Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1954, Side 51

Eimreiðin - 01.07.1954, Side 51
eimreiðin ÓLAFUR 1 HVALLÁTRUM 203 Ölafur var nokkuð til aldurs kominn, sem hann taldi ráðlegt að stækka, en gamli maðurinn var því mótfallinn, og kvað bátinn vel duga. Eitt sinn sem oftar bar svo til, að lesinn var húslestur í Sviðnum. Ólafur hvarf út undir lestrinum og kom ekki aftur inn. Þegar út var komið að loknum lestri, hafði hann sagað bátinn í tvennt. Var nú ekki framar um það deilt, að báturinn skyldi stækkaður. Svipaðar þessu voru sagðar fleiri tiltekjur hans, og þótti hann segjast mjög í ætt ömmu sinnar °g Svefneyinga. Eftir á lét afi hans vel yfir, og jafnvel ekki trútt um, að hann væri drjúgur yfir, er Ólafi tókst að leysa verkefni sín skörulega af hendi. Vorið 1892 fluttist Ólafur Bergsveinsson í Skáleyjar og kvænt- ist þar 20. júlí sama vorið Ólínu Jóhönnu Jónsdóttur tómthúss- manns þar, en áður hafði hann búið í Skógum í Þorskafirði. Hún var fædd 1. október 1872. Jón, faðir hennar var fæddur að Skriðnafelli á Barðaströnd 4. nóvember 1838, en andaðist 1 Hvallátrum hjá dóttur sinni 20. marz 1915. Hann var sonur bórðar bónda á Skriðnafelli og síðar í Holti á Barðaströnd, Jóns- sonar bónda í Holti, Einarssonar, Þorvaldssonar. Móðir Jóns var Anna, fædd á Hamri á Barðaströnd 1. nóvember 1810, Jóns- dóttir „tignors“, síðar hreppstjóra í Haga, Jónssonar, Arngrims- sonar. Signor Jón var að mörgu mikilhæfur karl, þó að lítt væri honum um það gefið, að menn gleymdu nafnbót hans, en sjálfur var hann blestur í máli, svo að hann gat ekki sagt „signor“ og Varð úr „tignor“. Jón Thoroddsen, skáld og sýslumaður, mælti með því við stjórnina, að Jón yrði annaðhvort Dannebrogs- maður eða Medalíumaður, og það varð hann, og kvað Jón síðan um hann: Signor Jón er sómamaður, sífelldlega er hann glaður, brennivíns ef bikar fær; kóngur á hann krossinn hengi! Krýni lofi gjörvallt mengi! hreykjast mun þá karlinn kær. Kona Jóns Þórðarsonar, en móðir Ólínu í Hvallátrum, var Kristín Guðrún, fædd að Skálmarnessmúla 29. dezember 1844, dóttir Daníels gullsmiðs og bónda þar, síðar í Hlíð í Þorskafirði,

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.