Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1954, Page 58

Eimreiðin - 01.07.1954, Page 58
210 ÓLAFUR 1 HVALLÁTRUM ElMBEIÐlN minn,“ svaraði Ólafur. Ég kvaðst vera líftryggður. Þegar hér var komið, var ég kominn út í skektuna, og hafði Ólafur hvorki leyft það né afdráttarlaust bannað. Við þæfum þetta um stund, og leysi ég utan af seglinu á meðan, en þægilegur byr var út sundið og beint lil Flateyjar. Lauk svo, að ég ýtti frá, án þess að Ólafur hefði eiginlega heimilað mér skektuna. Var þá hey- báturinn að renna inn á bæjarsundið. Ég sigldi nú út sundið í léttri golu, og tók stefnu á Flatey. En Ólafur gekk til bæjar og tók sjónauka mikinn, sem hann átti, og hafði nálega ekki af mér augu alla leið. Frétti ég það síðar, og að hann hefði látið heybátinn doka við og vera til taks. þangað til ég var kominn fram hjá blindskerjum, þar sem hann taldi mér hættast. Síðar þakkaði ég honum vel fyrir skektulánið, og hlógum við þá báðir að. Sagði þá Ólafur við mig: „Þú getur verið andskoti þrár, karl minn, ekki síður en ég!“ Fannst mér undir niðri Ólafur meta það við mig, að ég lét ekki aftra mér. Sambúð þeirra Látrahjóna var hin ákjósanlegasta, þó að ólík væru þau að mörgu. Ólafur var hár maður vexti, breiður unr herðar og nokkuð riðvaxinn, þykkur undir hönd, útlimasver, ramur að afli, garplegur og mikilúðlegur. Hann var smástígur og gekk hratt og var það ættareinkenni. Andlitið fremur breið- leitt, ennið lágt, brúnasvipurinn mikill og ákafi í svipnum, rétt- nefjaður, munnfríður og allt andlitið skapfellilegt, dökkjarpur á hár og skegg og bar jafnan alskegg, eftir að ég kynntist honum, kverkmæltur dálítið, en þó skýr í máli. Ólína var ein þeirra kyrrlátu húsfreyja, sem vinna störf sín af hógværð og hæglæti, en leysa þó mikið verk af hönduni- Hún var kona vel farin í andliti, en mátti ekki kallast fríð, ennissvipur mikill og gáfulegur, en niðurandlitið lítið. Hún var ekki munnfríð, en sérlega brosfögur, augun hýr og stöfuðu góð- leik og stillingu, enda munu það hafa verið sterkustu þættirnU' í skapgerð hennar ásamt óbrigðulli skyldurækni. Hún var meðal- há vexti, grannvaxin og herðasvipur fagur. Hún var björt yfir' litum, hárið ljósjarpt, mikið og fór vel. Minna orð fór af rausn hennar en bónda hennar, en hitt vissi enginn, að hún hefði fengizt um stórmannlegar gjafir bónda síns né dregið úr þeim, enda vafalaust gert sér ljóst, að það kom mest til Ólafs að afla hlutanna og draga til bús. Kunnugt er mér um það, að oft

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.