Eimreiðin - 01.01.1957, Blaðsíða 38
22
EIMREIÐIN
nefnd, sem skipuð er til þriggja ára. Menntamálaráðherra
skipar formann nefndarinnar og hina fjóra nefndarmennina
samkvæmt tilnefningu þessara aðila: heimspekideildar Há-
skóla íslands og listráðs, sem tilnefna sinn manninn hvort,
og menntamálaráðs, sem tilnefnir tvo menn. Þessum aðilum
er jafn-heimilt að kjósa fulltrúa utan sem innan stofnana
sinna. Menntamálaráðherra skipar varamenn með hliðstæðum
hætti og aðalmenn.
5. gr.
Öll listamannalaun skulu vera skattfrjáls.
Greinargerð og athugasemdir.
1.
Hinn 2. október 1956 skipaði menntamálaráðherra eftir-
talda menn í nefnd „til þess að gera tillögur um, hvernig
veiting listamannalauna yrði felld í fastara form og betur að
skapi þeirra, er launanna njóta, en verið hefur um skeið“:
Guðmund Gíslason Hagalín, rithöfund, Gunnlaug Scheving,
listmálara, Helga Sæmundsson, ritstjóra, Jón Leifs, tónskákl
og formann Bandalags íslenzkra listamanna, Pál ísólfsson, tón-
skáld, Snorra Hjartarson, skáld, Steingrím J. Þorsteinsson,
prófessor, Þorstein Hannesson, óperusöngvara, og Ævar Kvar-
an, leikara. Var Helgi Sæmundsson skipaður formaður nefnd-
arinnar.
Nefndin kom fyrst saman á fund hinn 21. október, en alls
hélt hún tólf fundi. Á fyrsta fundi nefndarinnar var Guð-
mundur Gíslason Hagalín kosinn ritari hennar og Snorri
Hjartarson vararitari. Fimm undirnefndir voru kosnar og
þeim falin verkefni, sem þær unnu að á milli funda aðalnefnd-
arinnar. Loks afgreiddi nefndin í einu hljóði tillögur þær um
skipan listamannalauna, sem hér fara á undan.
2.
Þá er Alþingi tók að veita laun eða viðurkenningu fyrir
listræn afrek, var fáum listamönnum til að dreifa hér á landi
öðrum en skáldum og rithöfundum, og í vitund þjóðarinnar