Eimreiðin - 01.01.1957, Page 44
28
EIMREIÐIN
stæðukennt að klípa af þeim starfsstyrk, sem veittur væri ung-
um listamanni, væri það ósæmandi að skerða þá upphæð, sem
veitt væri til að votta þroskuðum listamanni virðingu og
þakkir og örva hann til nýrra afreka, sem hann fær oft seint
launuð eða aldrei.
Þegar nefndin hafði kynnt sér ýtarlega úthlutun listamanna-
launa á undanförnum árum, komst hún brátt að þeirri sam-
eiginlegu niðurstöðu að fækka bæri bæði launþegum og
launaflokkum. Henni þótti auðsýnt, að ýmsir þeir listiðk-
endur hefðu hlotið laun, sem hvorki hefðu unnið listræn af-
rek né sýnt þá kunnáttu eða þær listrænar gáfur, sem vektu
vonir um slík afrek. Hún leit og þannig á, að launin í hinurn
lægstu launaflokkum liefðu verið of lág til þess að þau gætu
breytt aðstöðu launþegans til listrænna starfa, og ennfremur
mætti að nokkru rekja þá óánægju, sem ríkti út af úthlutun
listamannalauna meðal listunnenda og listamanna, til hinna
mörgu launaflokka.
Þó að nefndarmenn væru sammála um þessi atriði, komu
fram í fyrstu ýmsar skoðanir um fjölda launaflokka, tölu
launþega og hæð launa. Hafði Jón Leifs þar mesta sérstöðu.
Hann vildi, að allir listamenn, sem til greina kæmu, fengju
sömu launaupphæð, en 12 menn fengju hana ævilangt, aðrir
til tveggja ára í senn, en á hverju ári yrði upphæðin veitt 5
listamönnum, sem hefðu ekki fengið laun á seinustu árum.
Eftir að undimefnd hafði haft launaflokkana til athug-
unar, sameinaðist nefndin um þær tillögur, sem felast í 1. gr.
frumvarps þessa, og er nánari grein gerð fyrir rökum hennar
og afstöðu í skýringum við greinar frumvarpsins.
Þó að nefndin hafi ekki sett í frumvarpið ákvæði um fjölda
launþega í 2. og 3. flokki, en aðeins gert tillögur um, að hlut-
fallið milli heildarupphæða launa í þessum flokkum verði
um 60:40, miðaði hún tillögur sínar, eftir nána athugun á
úthlutun listamannalauna, við það, að í hvorum þessara flokka
yrðu 24 listamenn eða í báðum flokkunum samtals 48. Virtist
henni úthlutun lítt framkvæmanleg, ef lægri tala listamanna
kæmi til greina. Yrðu þá útgjöld ríkissjóðs til listamanna-
launa samkvæmt lögunum eins og liér segir, með þeirri vísi-
tölu á laun, sem nú er (80):