Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1957, Side 48

Eimreiðin - 01.01.1957, Side 48
32 EIMREIÐIN prófa. Nefndin gerði sér hins vegar far um að taka til hins sérfræðilega viðhorfs það tillit, sem hún taldi fært. Um 3. gr. Kjörgengi í listráð, eftir að það hefur verið kosið í fyrsta sinn, er því bundið, að listamenn liafi einhvern tíma hlotið listamannalaun í 2. flokki. Með þessu ætti að vera tryggt, að til setu í listráði komi til greina þeir einir, sem þegar hafi notið viðurkenningar fyrir list sína. — Væntir nefndin þess, að þetta fyrirkomulag reynist sanngjarnt og nægilegar skorður við annarlegum sjónarmiðum. Um 4. gr. Um ákvæði varðandi val nefndar, er úthluti listamanna- launum 2. og 3. flokks, skal skírskota til þess, sem þegar hefur verið sagt um kjörráð listráðsins. Hæfilegt virðist, að nefndin sé skipuð 5 mönnum. Þriggja manna nefnd sýnist helzt til fámenn, og heppilegt mun, að nefndarmenn séu fleiri en 4 af þeirri ástæðu, að tveir á móti mega sín þá meira en tveir með við afgreiðslu mála. Ennfremur mun henta, að nefndin sé skipuð hverju sinni til þriggja ára. Undanfarið hefur Al- þingi kosið úthlutunarnefnd til eins árs í senn. Það fyrir- komulag hefur augljósa ókosti. Úthlutunarnefnd er þá ekki unnt að gera ráð fyrir nema eins árs starfi, svo að hún getur ekki skipulagt úthlutun um eitthvert ákveðið árabil. Sá hátt- ur mundi þó harla æskilegur, og slíkum vinnubrögðum verð- ur komið við, ef úthlutunarnefnd fær þriggja ára starfstíma hverju sinni, eins og hér er gert ráð fyrir. Um 5. gr. Til skýringar þessari grein skal látið nægja að vísa til þess, sem fram kemur í 4. kafla greinargerðarinnar. ☆ Rómantík Bjarna og Jónasar var með öðrum orðum í því falin að flytja huga lesendanna frá réttum skilningi á yfirstandandi stund og binda hann þess í stað við blindandi gyllingar liðinna tíma. Þórbergur Þórðarson i „Rauða heettan“ 1935.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.