Eimreiðin - 01.01.1957, Page 48
32
EIMREIÐIN
prófa. Nefndin gerði sér hins vegar far um að taka til hins
sérfræðilega viðhorfs það tillit, sem hún taldi fært.
Um 3. gr.
Kjörgengi í listráð, eftir að það hefur verið kosið í fyrsta
sinn, er því bundið, að listamenn liafi einhvern tíma hlotið
listamannalaun í 2. flokki. Með þessu ætti að vera tryggt, að
til setu í listráði komi til greina þeir einir, sem þegar hafi
notið viðurkenningar fyrir list sína. — Væntir nefndin þess,
að þetta fyrirkomulag reynist sanngjarnt og nægilegar skorður
við annarlegum sjónarmiðum.
Um 4. gr.
Um ákvæði varðandi val nefndar, er úthluti listamanna-
launum 2. og 3. flokks, skal skírskota til þess, sem þegar hefur
verið sagt um kjörráð listráðsins. Hæfilegt virðist, að nefndin
sé skipuð 5 mönnum. Þriggja manna nefnd sýnist helzt til
fámenn, og heppilegt mun, að nefndarmenn séu fleiri en 4
af þeirri ástæðu, að tveir á móti mega sín þá meira en tveir
með við afgreiðslu mála. Ennfremur mun henta, að nefndin
sé skipuð hverju sinni til þriggja ára. Undanfarið hefur Al-
þingi kosið úthlutunarnefnd til eins árs í senn. Það fyrir-
komulag hefur augljósa ókosti. Úthlutunarnefnd er þá ekki
unnt að gera ráð fyrir nema eins árs starfi, svo að hún getur
ekki skipulagt úthlutun um eitthvert ákveðið árabil. Sá hátt-
ur mundi þó harla æskilegur, og slíkum vinnubrögðum verð-
ur komið við, ef úthlutunarnefnd fær þriggja ára starfstíma
hverju sinni, eins og hér er gert ráð fyrir.
Um 5. gr.
Til skýringar þessari grein skal látið nægja að vísa til þess,
sem fram kemur í 4. kafla greinargerðarinnar.
☆
Rómantík Bjarna og Jónasar var með öðrum orðum í því falin að
flytja huga lesendanna frá réttum skilningi á yfirstandandi stund og
binda hann þess í stað við blindandi gyllingar liðinna tíma.
Þórbergur Þórðarson i „Rauða heettan“ 1935.