Eimreiðin - 01.01.1957, Qupperneq 65
GRÓZKAN í BÓKMENNTUM FÆREYINGA 4í)
skáld, sem er mikill mannþekkjari og kann með afbrigðum
góð skil á hugsunarhætti og lundarfari landa sinna, sem eiu
þyngslalegir og rólegir hið ytra, en hið innra menn mikilla
andstaeðna og átaka. Og sá, er vill kynnast náið lífi færeyskia
fiskimanna heima og heiman, ætti ekki frekar að leita séi
fræðslu í aðrar bækur en þessa.
3.
Þetta yfirlit er sjálfsagt engan veginn tæmandi, en það sýmr
þó ljóslega, hver grózka er í bókmenntum Færeyinga. Og þo
að ég sé ekki fróður um önnur svið menningarlífs hinnar fær-
eysku þjóðar, veit ég, að þar er einnig gróandi. Færeyingai
eiga nokkra mikilhæfa listmálara og að minnsta kosti einn
Yeigamikinn myndhöggvara. Þjóðin virðist því búa yfii mjög
miklum listrænum gáfum. .
En færeysk menning á við að stríða ærna erfiðleika. æi
eyingar eru mörgum sinnum færri en við, og lesendahópur
færeyskra skálda og rithöfunda hlýtur því að vera mjog litill.
Þá geta og færeysk skáld ekki vænzt jafnmikils stuðnmgs af
opinberu fé og íslenzkir höfundar verða aðnjótandi. Erlend
áhrif hljóta og að verða Færeyingum ennþá áleitnari en okkur
fslendingum. Þeir hafa ekkert útvarp haft á færeysku allt til
þessa, og fólkið hlustar á danskt, norskt og brezkt útvarp.
Þá mun og flaumur hinna erlendu vikurita vera enn meiri
í Færeyjum en hér, og loks er þess að geta, sem ekki mun
þjálast viðureignar: Þröngsýnir trúarflokkar hafa með Fær-
eyingum náð miklum mun almennari tökum á fólkinu heldui
en dæmi eru til nokkurs staðar hér á landi, og fonngjar
flestra slíka flokka banna áhangendum sínum að lesa rit eða
bækur, sem ekki eru gefnar út af skoðanabræðrum þeirra —
°g allar tómstundir fólksins verða að vera þeim og þeirra
kenningum helgaðar. Er þar hinu sama andans myrkn til að
óreifa og í löndum kommúnista og fasista.
Við íslendingar höfum sinnt færeyskum bókmenntum og
orenningu með ólíkindum lítið. Hér eru til félög, sem stefna
menningarlegri kynningu og samstarfi íslendinga og Dana,
svía, Norðmanna, Finna, Þjóðverja, Frakka, Breta, Banda-
ríkjamanna, Rússa og Kínverja — og eftir því, sem ég bezt