Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1957, Page 89

Eimreiðin - 01.01.1957, Page 89
RITSJÁ v‘rðast örugg til góðrar úrlausnar, en þessu fylgja ýmsir annmarkar. Með þessum hætti verður ekki lögð * valið sú persónulega alúð, sem veljanda er nauðsynlegt og eðlilegt að leggja af mörkum, þegar hann veit fyrir fram, að hann er jafn htils ráðandi og þarna er. Hver þeirra á það alveg undir skafti og hlaði, hvort hans val hlýtur sam- þykki annarra nefndarmanna, að- eins einni sögu fær hann örugglega ráða, — af úrganginum. Afleið- ing þessa er auðsæ í ósamræmdu efnisvali og skorti á persónuleika frá bókarinnar hálfu, ef svo.mætti segja, gagnvart efnisvali og listræn- um vinnubrögðum hinna völdu höfunda. Kostir þess, að úrval sé gert af einum manni (því úrval hlýtur þetta að teljast með vissum hætti) eða að hann ráði vali þess í öllum böfuðatriðum, eru aukin líkindi fyrir að meiri alúð og vandvirkni verði lögð í verkið, þar sem hann er ábyrgur fyrir því. Auk þess hlýt- ur safnið að fá á sig persónulegan svip, verða samræmdara til fagur- fræðilegrar og listrænnar niður- stöðu, með öðrum orðum bera með sér augljós merki um hæfni velj- andans. I>á er hægt að flytja velj- anda lof eða last, sem ekki verður gert með sama liætti við nefndina. Hún getur ekki gefið viðhlítandi svör við sumum aðfinnslum, því að hún stendur ekki sem einn mað- ur að verkinu. hessar aðfinnslur eru fyrst og fremst framsettar til að vekja at hygli á, að þessi starfsaðferð við úrval slíkt sem þetta er mjög vafa- söm. £g hefði í sporum nefndar- ntanna ekki fengizt til að taka það að mér. Samvizkusömum gagnrýn- anda á að vera annara en svo urn skoðun sína og listmat, að hann vilji eiga það undir atkvæðagreiðslu annarra, liversu honum beri að meta eigin skyn og smekk. En ef þetta ber að skoða sem sýnisbók eingöngu, en alls ekki urval eftir listrænu mati, þá er vandi nefndar- manna minni og allar handaupp- réttingar afsakanlegri. Þá er höfuð- markmiðið væntanlega að bregða upp sem fjölbreyttustum myndum úr þjóðlífinu öðrum þræði, en á hinn bóginn að sýna þróun smá- sögunnar, hafandi þo 1 huga að minnsta kosti góða meðaleinkunn, er sagan þyrfti að ná. Þá er aftur komið að því, að sem slíkt er safnið of takmarkað og þó þanið yfir of langt tímabil. Ef lesandinn á að hugsa sér þetta sem aðalmarkmið bókarinnar, þá hefði að flestu leyti verið forvitni- legra fyrir lesandann, að sögurnar væru birtar í aldursröð fremur en höfundarnir. Með þvi fékkst betra yfirlit yfir þróun sagnagerðarinnar og jafnframt breytingar á vinnu- brögðum höfundanna. Óaðgæzla er það gagnvart lesandanum að geta ekki, úr hv'aða bókum höfunda sög- urnar eru teknar eða hvenær fyrst prentaðar. í svona yfirlitsriti skipt- ir það máli, hvenær tiltekin saga birtist fyrst og á hvaða aldursskeiði höfundur er, þegar hann ritar hana, - að því leyti sem það verður ráðið af upphaflegri birtingu hennar. Áhugamaður í þessum efnum vill gjarnan vita, hvort saga eftir tiltek- inn höfund íslenzkan er prentuð fyrir 3 árum síðan eða 30 árum. Um það leyti að lesendur eru orðn- ir með öllu óforvitnir um hluti sem

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.