Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1957, Page 16

Eimreiðin - 01.10.1957, Page 16
248 EIMREIÐIN uppi, að við svo búið má ekki standa, ef sú æskilega þróun, sem hafizt hefur, á ekki að stöðvast með öllu. LISTAMANNALA UN. Frá því að fyrst var tekið að veita íslenzkum listamönnum styrki af opinberu fé, hafa verið um það mál mjög skiptar skoðanir. Þó hefur þróunin orðið sú, að allur þorri manna hefur fallið frá andstöðu við, að slíkum mönnum sé veitt við- urkenning af hálfu þjóðarinnar. Margir munu halda, að listamenn njóti nú hærri launa en nokkru sinni fyrr, þar eð tekjur ríkisins hafa aldrei verið hlut- fallslega jafnháar og nú og lífskjör allrar þjóðarinnar eru nú stórum betri en nokkru sinni áður. En hér skal stuttlega gerð grein fyrir því, að styrkir og laun til listamanna eru lægri en þingi og þjóð fannst sæmandi að bjóða á fyrstu áratugum þess- arar aldar. Kunnugt er, að smátt þótti skammtað, þá er Þor- steinn Erlingsson hlaut 600 króna skáldastyrk, og sjálfur kvað hann í háði: „Og sex hundruð krónum svo leikandi list mun landssjóður tæplega neita.“ En sex hundruð krónurnar mundi óhætt að margfalda með 50, svo að hliðstæð laun ættu nú að vera 30 þúsund! Þau laun, sem íslenzk skáld nutu 1913, mundi mega margfalda með 40, og laun og styrki frá 1933 með 15 — og mundi þá aðeins tekið tillit til verðrýrnunar íslenzkrar krónu, en ekki til þeirra breytinga, sem síðan hafa orðið á lífskjörum þjóðarinnar í heild. Hliðstæð Styrkur til skálda 1913: Einar Hjörleifsson .............. kr. 1200 Guðm. Magnússon (Jón Trausti) . . — 1200 Þorsteinn Erlingsson............... — 1200 Guðmundur Guðmundsson.............. — 1000 Valdimar Briem..................... — 800 Guðmundur Friðjónsson.............. — 600 upphæð 1957 kr. 48000 _ 48000 _ 48000 _ 40000 _ 32000 _ 24000 Styrkur til skálda og rithöfunda 1933: Einar Benediktsson .................. kr. 5000 Dr. Helgi Pjeturss ................ — 4000 Indriði Einarsson.................. — 3500 Hliðstæð upphæð 1957 kr. 75000 _ 60000 - 52500

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.