Eimreiðin - 01.10.1957, Blaðsíða 29
DR. HELGI PJETURSS
261
sumir þeirra hinir færustu menn í vísindagrein sinni. Um
vísindalegan árangur þeirrar farar skrifaði dr. Helgi 1898 grein
ú dönsku í tímaritið „Meddelelser om Grönland“, en ferðasög-
una sjálfa skrifaði hann á íslenzku. Birtist hún í 5. bindi
..Bókasafns alþýðu", er Oddur Björnsson gaf út, ásamt sögu
Grænlendinga eftir Finn Jónsson. Sú bók hefur hlotið mikl-
ar vinsældir og er fyrir löngu uppseld.
Á fyrsta tug þessarar aldar og fram á annan ferðaðist dr.
Helgi víða um Evrópu. Hefur hann skrifað mjög fróðlegar og
skemmtilegar ferðasögur frá þessum tíma. Er þær flestar að
íinna í eldri árgöngum Skírnis. Á víð og dreif í blöðum og
Dmaritum íslenzkum frá þessum árum má einnig sjá mikinn
^jölda af ritgerðum eftir hann um margvísleg viðfangsefni
°nnur en hin vísindalegu störf, sem hann fékkst þá við.
Árið 1904 gaf Þjóðvinafélagið út „Darwinskenning uni
uppruna dýrategunda og jurta“, eftir G. Armer Hansen yfir-
^kni í Noregi, í þýðingu dr. Helga. Vakti sú bók á sín-
Urn tíma athygli og umtal. Með henni vildi hinn ungi nátt-
urufræðingur kynna löndum sínum þessar merku uppgötv-
anir, sem hann segir um í formála eftir höfundi, „að ekki
§etl sá maður verið fyllilega siðaður, sem alveg sá fávís um
Pessi efni.“ Bók þessi er eins og undirstaða þeirra margvíslegu
nppgötvana í líffræði, er hann sjálfur gerði og sagt verður að
u°kkru frá síðar. Dr. Helgi hafði þegar í æsku eindregið
neigzt til og heillazt af náttúrufræði og þegar í lærða skól-
anum hafið undirbúning að því að leggja stund á þessi fræði,
n^eð því að lesa rit hinna merkustu brautryðjenda og snill-
á þessu sviði.
ÍV.
Þó að hinn vísindalegi árangur Grænlandsferðarinnar væri
mikiH, þá fór svo vegna slæmrar aðbúðar og langrar úti-
mstar á skipinu, að dr. Helgi beið heilsutjón í ferðinni, sem
atnaði aldrei að fullu síðan. Hefur hann sjálfur lýst þessu
e tlrminnilega í greininni „Torleiði", í 1. bindi Nýals, en þrátt
"rir þann hnekki, sem það heilsutjón bakaði honum, voru
rannsóknirnar á Grænlandi aðeins undirbúningur undir aðrar
stlerri, sem biðu hans hér á landi. Vorið 1898 kom dr. Helgi