Eimreiðin - 01.10.1957, Page 30
262
EIMREIÐIN
heim til íslands, og sumarið 1899 hó£ hann jarðfræðirannsóknir
sínar hér. Ætlaði hann í fyrstu að rannsaka forn fjörumörk
á Suðurlandi, en eitt sinn, er hann var staddur hjá móbergs-
hömrum nokkrum í Hrunamannahreppi, þá opnaðist fyrir
honum líking á móberginu og sendnum leir, sem menn vita
að er frá jöklum. Þessi líking leiddi til þess, að um sumarið
vann hann kappsamlega að sanna þessa tilgátu sína, og það
tókst. Var nú vitað, hvers eðlis móbergið er — en um það
voru hugmyndir náttúrufræðinga mjög óljósar — og með
því gerð höfuðuppgötvun í jarðfræði, sem kollvarpaði eldri
hugmyndum. Hefur síðan verið byggt á þessum uppgötvun-
um og hann kallaður faðir íslenzkrar jarðfrœði.
í ágætri yfirlitsgrein í 1. bindi Nýals bls. 424—428 (önnur
útgáfa), dregur dr. Helgi fram aðalatriðin í jarðfræðiupp-
götvunum sínum. í upphafi skýrir hann í átta atriðum aðal-
hugmyndir náttúrufræðinga á jarðfræði íslands áður en hann
hóf rannsóknir sínar. Síðan greinir hann frá helztu niðurstöð-
um sínum, einnig í átta atriðum. í niðurlagi nefndrar greinar
hvetur dr. Helgi þá, sem við jarðfræðirannsóknir fást, að rann-
saka vel þann mun, sem er á gang- eða sprungustefnum í
eldri og yngri blágrýtismyndun landsins. Hann telur, að
önnur stefna hafi á pleistocenu öld verið á þeim öflum, sem
miðuðu að því að brjóta sundur landið, og af því stafi þessi
munur. Ennfremur heldur hann því fram, „að framtíðin
muni líta svo á, sem nýtt tímabil hefjist í jökulalda rann-
sóknum, þegar jarðfræðingar fari að nota þá byrjun, sem gerð
liefur verið, og snúa sér að því alvarlega að skoða þá jarð-
myndun íslands.“
Hér verður ekki frekar farið út í hinar mörgu og mikln
uppgötvanir dr. Helga í jarðfræði íslands, enda ekki á mínu
færi. En á það skal benda, að auk ritgerða lians sjálfs uffl
þessi efni hefur Jakob H. Líndal á Lækjamóti skrifað glöggva
og góða grein í Viðnýal 1942 og eins Jóhannes Áskelsson 1
Náttúrufræðinginn 1942 og 1949, ennfremur Guðmundui
Kjartansson o. fl. Hafa þeir Jóhannes og Jakob H. Líndal
unnið þarft verk að láta greinum sínum fylgja skrá yfir alh
það, sem dr. Helgi hefur skráð um þessi og önnur efni viðs
vegar. Veit ég þó vel, að skrá Jóhannesar yfir ritverk dt-