Eimreiðin - 01.10.1957, Síða 31
DR. HELGI PJETURSS
263
Helga er langt £rá því að vera tæmandi, enda býst hann ekki
við því sjálfur. En hér er auðveldara um að bæta. Af skrá
Jakobs H. Líndals í Viðnýal sést, að dr. Helgi liefur skrifað
25 ritgerðir um jarðfræði íslands. Eru þær flestar á erlend-
um tungumálum, svo sem dönsku, ensku og þýzku. En dr.
Helgi lét ekki þar við lenda að skrifa um þessi efni á erlend-
um tungumálum, heldur hélt hann á ferðum sínum í útlönd-
um fyrirlestra í vísindafélögum enskum og þýzkum. Svo mik-
ið álit hafði dr. Helgi unnið sér erlendis, er hér var komið
sögu, fyrir jarðfræðiuppgötvanir sínar, að hinn heimskunni
þýzki vísindamaður á sviði jarðfræði og landafræði, prófess-
or Pench, vildi styrkja rannsóknir hans með 8000 gullmörk-
um. En úr því varð eigi.
Jarðfræðirannsóknir sínar mun dr. Helgi hafa stundað nær
einvörðungu um rúmlega 10 ára skeið. Má furðulegt heita,
að hann skyldi afkasta svo miklu og leiða eins margt í ljós á
jafnskömmum tíma og raun ber vitni. Sem augljóst dæmi um
framúrskarandi skarpskyggni og athyglisgáfu dr. Helga tek
% það, að hann fann fyrstur manna skriðjökla á Heklu.
Höfðu þó margir vísindamenn gengið á þetta fræga fjall og
ekki slíkt séð. Meira að segja var Heklufjall mælt og mynd-
að af hinum dönsku landmælingamönnum, áður en dr. Helgi
hafði þangað komið.
Árið 1912 birti dr. Helgi síðustu grein sína um jarðfræði-
'egar nýjungar. Annars lagði hann jarðfræði aldrei á hilluna.
Álla tíð birti hann við og við greinar um fræðileg efni og þá
stundum til varnar þessum uppgötvunum sínum, því enn um
skeið efuðust ýmsir um sum atriði þeirra. En nú var hugur-
lnn gagntekinn af stærri og víðfeðmari viðfangsefnum.
V.
Ofsagt er ekki, að dr. Helgi hafi, er hér var komið sögu,
l>nnið það afrek, er telja mætti til mikils ævistarfs og halda
lnyndi lengi nafni hans á lofti. En þetta var í rauninni und-
lrbúningur og eins konar æfing til að leysa ennþá torráðnari
gátur. Aðalverkið var óunnið og undirbúning þess þurfti að
'anda sem bezt. Það er eins og vakað hafi fyrir hinum unga
' 'sindamanni að læra þyrfti sem mest, því eftir að dr. Helgi