Eimreiðin - 01.10.1957, Side 34
266
EIMREIÐIN
liann stilla og lögmálið stillilögmál. Er það einnig sérvirkt
og ræður mjög mannfélagsástandi á hverjum tíma.
Nú kemur í ljós, að margt ber fyrir augu í draumi, sein
fyrirfinnst ekki á vorri jörð. Af þessum og fleiri athugunum
dró dr. Helgi þá ályktun, að draumgjafinn eigi vanalegast
heima á annarri jörð. Hann tilfærir þá dæmi þess, að menn
geti dreymt samtímis það sama og annar lifir í vöku á þess-
ari jörð. Eru til óvefengjanlegar frásagnir af slíku. — Fjar-
lægðirnar miklu milli sólhverfanna og sólnahverfanna í hin-
um óendanlega heimi hindra ekki að þetta samband geti orð-
ið, því geislunin frá lifandi verum, lífsgeislunin upphefur
allar fjarlægðir. Hraði hinna ýmsu orkutegunda er mjög
misjafn. Hingað til hefur hraði ljóssins verið talinn mestur,
en hann verður heldur seinn í förum, þegar lífsorkan kem-
ur til sögunnar.
Rannsóknir þessar leiddu fleira furðulegt í ljós, svo sem að
miðilssvefninn er afbrigði vanalegs svefns. Hefur dr. Helgi í
ritum sínum fært margháttuð rök að því, að hinir svoköll-
uðu „andar“, sem tala fyrir munn miðilsins, séu íbúar ann-
arra hnatta. Kemur glögglega í ljós við rannsóknir hinna
spíritisku rita, að þeir, sem tala fyrir munn miðilsins, eru
mjög þrálátlega að koma því í gegn, að þeir búi ekki í anda-
heimi og séu ekki andar, Iieldur líkamlegar verur eins og
mennirnir eru hér á jörðu. Hefur dr. Helgi ritað mjög mik-
ið um þessi efni. Út frá þessum uppgötvunum færði hann rök
að því, að öll trú, hvort sem hún birtist í venjulegum þjóð-
sögum eða hinum fullkomnustu trúarbrögðum, stafar frá
misskildu vitsambandi við verur annarra byggðra stjarna.
Samband þetta getur verið við verur lengra komnar í góðu
og lengra komnar í illu. Fer það eftir ástandi mannfélags-
ins á hverjum tíma eða áðurgreindu stillilögmáli.
Dr. Helgi byggði fyrstur manna út frá þessu vísindalega
kenningu um, að framhald lífsins sé á öðrum stjörnum. E1
hún svo traustlega gerð og rökstudd — þóttt viðfangsefnið se
viðamikið — að í augum uppi liggur, að hér eru vísindin kom-
in til sögunnar. Niðurstöður hans eru í fáum orðum þessar:
í dauðanum flyzt lífsorkan til annarra byggðra hnatta efti'
þeim leiðum, sem hver og einn í lífinu hefur farið hér á