Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1957, Page 44

Eimreiðin - 01.10.1957, Page 44
Gunnar Br, Siémundsson eftir Loft Guðmundsson. Ljós logar í eldhúsinu í húsinu, sem kallað er Amsterdam. Þar situr Anna, kona Gunnars Br. Sigmundssonar, á kollótt- urn stól við eldavélina og prjónar sokka úr fínu mórauðu þel- bandi. Hún starir diramum augum út í bláinn, situr bein í sessi, magrar hendur hennar og langfingraðar bæra prjónana svo ótt og títt, að vart má auga á festa, en að öðru leyti hreyfir hún hvorki legg né lið fremur en væri hún úr steini ger. Hún er ein heima; dæturnar fóru út snennna kvölds, málaðar, púðr- aðar og útskvettar ilmvötnum. Þær voru eitthvað að tala uffl norskt skip. Ef til vill eru þær þar um borð, ef til vill eru þasr í hermannabröggunum, Anna, móðir þeirra, veit ekkert uffl það. Þær stunda erlendu skipin og braggana jöfnum höndum; það veit hvert mannsbarn í bænum, nema ef vera skyldi, að móður þeirra væri ókunnugt um það, en um það getur enginn sagt. Enginn veit, hvort henni er kunnugt um þetta eða hitt. Dætur hennar fara út á hverju kvöldi, og hún spyr þær aldrei, hvert ferð þeirra sé heitið. Þær koma sjaldnast heim fyrr en undir morgunsárið, og hún spyr þær aldrei hvar þær hafi verið. Hún spyr hvorki um það né annað. Hana varðar ekki um neitt. Það snarkar í kolaeldinum í eldavélinni, og vatn sýður i j

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.