Eimreiðin - 01.10.1957, Síða 69
ERLENDAR BÓKFREGNIR
301
°g kunnáttu til þess að ræða ljóð-
skáld og ljóðagerð eldri og yngri.
■.Kemur hér fram hið djúpstæða,
mannlega eðli Eliots, yfirlætisleysi
hans, kímni og ekki ólítil vizka“,
— þannig endar einn gagnrýnand-
inn umsögn sína um þessa bók.
BANDARÍKIN.
Annar Nóbelsverðlaunahöfund-
ur. Suðurríkjamaðurinn William
Baulkner, sem hér dvaldi nokkra
daga fyrir tveimur árum, hefur ný-
^ega látið frá sér fara nýja skáld-
sögu, hina fyrstu á þremur árum.
Nefnist hún The Town (Borgin)
°g er framhald af bókinni Tlie
Hamlet (Þorpið), sem kom út árið
1940. Hún segir því frá gömlum
kunningjum, Snópesunum, en eins
°g að vanda rísa ýmsir aðrir dímon-
ar upp úr liinni rauðu leirmold
Yoknapatawphahéraðs i Mississippi,
en svo nefnist hérað það, sem
l'aulkner hefur skapað og gefið
uafn í hugarheimi sínum og gert
údauðlegt engu síður en persón-
urnar í verkum sínum, en þetta
Umhverfi líkist mjög þeim slóðum,
sem William Faulkner hefur búið
‘l mestan hluta ævi sinnar.
Baulkner ristir aldrei grunnt,
Bann er ekki höfundur, sem lætur
súr nægja skinnsprettur og. yfir-
úorðsathugun. Hann verður að
gfafa dýpst niður í myrkustu fylgsni
uaannssálarinnar. í Borginni halda
^uópesarnir áfram fyrri iðju sinni.
^leð ágirnd sinni, skorti á sjálfs-
'•uðingu og takmarkalausu sjálfs-
áliti hefur þeim tekizt að verða
ser betri mönnum yfirsterkari, sölsa
Uudir sig jarðir og aðrar eignir og
)rjótast áfram til auðs og valda.
Brásagan spinnst að öðrum meg-
inþræði um stúlkuna Eula. Hún
er dóttir Varners, fyrrum gósseig-
anda, sem kominn er af einni hinna
gömlu og virðulegu ætta héraðsins,
en liefur orðið undir í lífsbarátt-
unni og lagzt í óreglu. Eula verður
barnshafandi, en enginn veit, liver
á barnið. Faðir hennar gefur hana
Flem Snopes, sem áður var mat-
sveinn, en er nú orðinn bankastjóri
í Jefferson, og hann hækkar enn
um nokkrar rimar í þjóðfélagsstiga
Jeffersonbæjar, er hann leyfir De
Spain „majór“ að kokkála sig og
vonast þannig til þess, að Snopes-
fjölskyldan ávinni sér aukið álit
með því að eiga þannig kynferðis-
legt samneyti við liina aristókrat-
ísku De Spain fjölskyldu. Hinn
blíðlyndi, hvíthærði lögfræðingur,
Gavin Stevens, verður ástfanginn af
hinni ungu dóttur Eulu, sem lieitir
Linda, og hvetur hana til þess að
fara á brott með sér frá Jefferson
sökum þess, hve Snópesarnir hafa
náð þar miklum völdum, en Flem
Snopes heldur fast í konu sína og
dóttur hennar, unz Eula styttir
Lindu aldur með byssuskoti.
Þetta skáldverk ber glöggt vitni
hinni miklu ringulreið og örvænt-
ingu, sem gert hefur svo mjög vart
við sig i Suðurríkjunum, örvænting
og ringulreið, er stafar af því mikla
vandamáli, sem að íbúunum hefur
steðjað og gerir enn. í bók sinni
lætur Faulkner heilt bæjarfélag tala
í einu af örvæntingu og ráðleysi,
eins og það geti ekki á neinn hátt
flúið þau örlög, sem íbúar þess hafa
sjálfir kallað yfir sig. Hann skrifar
hér af sömu fljúgandi snilldinni og
áður, snilld, sem oft og einatt veld-
ur lesandanum sárri kvöl eins og
hann komist ekki lijá því að verða