Eimreiðin - 01.10.1957, Síða 70
302
EIMREIÐIN
sjálfur þátttakandi í hinum örlaga-
þrungna lífsleik, sem Faulkner lýs-
ir. Þetta er önnur bókin af þrem-
ur, sem höfundurinn ætlar sér að
rita um sama efni og sömu persón-
ur.
DANMÖRK.
A elliárum sínum ritaði Martin
Andersen Nexö tvær skáldsögur,
sem voru eins konar endurminn-
ingar, Morten hin röde og Den
íortabte generation. Þessar sögur
voru í raun réttri og á sína vísu
framhald bæði á Pelle Erobreren
og endurminningum lians frá
bernsku- og unglingsárum.
A síðustu árunum fyrir dauða
sinn vann Nexö að því að skrifa
þá bók, sem átti að verða lokabindi
þessa verks. Hún átti að fjalla urn
liin erfiðu ár fyrir síðustu heims-
styrjöld, og liafði liann nefnt hana
Jeanetíe.
Ekki entist Martin Andersen
Nexö aldur til þess að Ijúka þessu
skáldverki til fulls, en honum hafði
þó unnizt tími til þess að gefa sína
sérstæðu lýsingu á síðustu árum
tímabilsins millum heimsstyrjald-
anna tveggja, þegar hinn svarti
skuggi nazismans hafði lagzt yfir
gjörvallt Þýzkaland og Austurríki,
en í nágrannaríki Þjóðverja, Dan-
mörku, ríkti uggur og óvissa um
framtíðina. Hin tápmikla og hug-
rakka Jeanette stendur þar upp úr
sem tákn sameiningar og þraut-
seigju.
Bók þessi kom út í Danmörku
fyrir rúmum tveim mánuðum, og
munu liinir mörgu aðdáendur
Nexös hér á landi án efa hugsa
gott til þess að fá hana til lestrar,
þótt skáldinu entist ekki aldur til
að ljúka lienni til fulls. Þeir Börge
Houmann og Hans Kirk hafa séð
um útgáfu bókarinnar.
Þá er ekki alls fyrir löngu komin
út í Danmörku önnur útgáfa af
smásagnasafni færeyska skáldsins
Williams Heinesens, er hann
nefndi Det fortyllede lys (Töfra-
ljósið). Hafa þessar smásögur hlot-
ið afbragðsviðtökur og aukið á
hróður þessa merkilega liöfundar.
Harald Engberg lét m. a. svo uffl
mælt, er hann ritaði um þetta
sögusafn:
„Þegar finna á þessum sögunt
stað í nútímabókmenntunum, verð-
ur manni ósjálfrátt á að skipa höf-
undi þeirra á bekk með þeim, sem
hafa hlotið Nóbelsverðlaunin, eins
og Johannesi V. Jensen og Halldóri
Kiljan Laxness, eða þá þeim, sem
hefðu átt að fá Nóbelsverðlaunin,
svo sem Martin A. Hansen og
Karen Blixen."
NOREGUR.
í októbermánuði s. 1. birtist
þriðja og síðasta bindið af sögu
Johans Borgens um Lillelord, eða
Wilfred Sagen, eins og hann heitir
réttu nafni. Nefnir liöfundurinn
þetta bindi Vi har ham ná. I f)'rrl
bindunum kynntist lesandinn Wil'
fred sem ungum dreng í Kristianm
á árunum fyrir fyrri heimsstyrjöld>
og síðan sem ungum nianni, me®
þverbrotið og tvískipt sálarlíf: ann-
ars vegar liinn ungi og gáfaði nams-
maður og augasteinn móður sinn-
ar, sem naut aðdáunar allra, hms
vegar hinn nautnasjúki og óprúttn
náungi, sem lifir í undirlieimum
Oslóar og Kaupmannahafnar.
Nú hittir lesandinn Wilfred 1