Eimreiðin - 01.10.1957, Page 72
Sveinn Björnsson: ENDURMINN-
INGAR. ísafoldarprentsmiðja.
1957.
Fyrsti sendiherra og forseti ís-
lands lét eftir sig handrit að end-
urminningum. En á handrit þetta
hafði hann ekki lagt síðustu liönd,
enda lýkur minningunum árið
1941, þá er ákveðið hefur verið að
setja ríkisstjóra á íslandi. Sveinn
Björnsson hafði skrifað drög að
formála. Við þennan formála bætti
hann tveimur athugasemdum, þar
sem hann getur þess, hvað ritun
endurminninganna miði. Þeirri
síðari lýkur með þessum orðum:
„En þetta, sem ég hefi skrifað,
má ekki með neinu móti birta, eins
og það er.“
Sigurður Nordal hefur séð um
útgáfu bókarinnar, og skrifar hann
eftirmála. Þar skýrir hann meðal
annars frá þeim breytingum, sem
gerðar liafa verið á handritinu.
Þær liafa allar orðið til í samráði
við frú Georgíu Björnsson og Hen-
rik Sv. Björnsson ráðuneytisstjóra.
Auk nokkurra úrfellinga liefur þar
aðeins verið um að ræða samræm-
ing stafsetningar og greinarmerkja
og smávægilegar breytingar á orð-
færi, þar sem augljóst liefur verið,
að höfundur mundi hafa breytt í
hreinritun. Mun svo engum dylj-
ast, sem minningarnar les, að vel
hafi verið ráðið, að þær væru gefn-
ar út. Þetta er að öllu hin merk-
asta bók. Hún gefur glögga mynd af
höfundinum, gerð hans, þroska- og
starfsferli, bregður upp fjölda
mynda af umhverfi, atburðum og
margvíslegum mönnum, og sýnir 1
fáum, en furðu skýrum dráttuni
þróun íslenzkrar viðleitni til auk-
innar og fjölþættari sjálfsbjargar
inn á við og mótunar á sannar-
lega torveldri fyrirgreiðslu á al-
þjóðlegum vettvangi. Yfir bók-
inni er frá upphafi til enda blter
einlægrar viðleitni til að segja
hreinskilnislega það, sem höfund-
urinn veit sannast og réttast, svo
stuttlega sem honum er unnt. Og
jafnvel þá er um er að ræða stór
mál og flókin, hefur honum tekizt
frábærlega vel að gefa lesandanuffl
liugmynd um höfuðdrættina í eðh
þeirra og þróun. Sá, sem ekki het-
ur skilið það fyrr, mun sannfærð-
ur um það í bókarlok, að sakir
ótvíræðra verðleika hafi Sveinn
Björnsson verið valinn fyrsti rík-
isstjóri og forseti íslands.
Og þrátt fyrir það, þótt höfund-
ur hefði ekki náð að meitla til
fulls mál og stíl bókarinnar, er
hún svo vel gerð að skipan efnis
og frásagnarhætti, að hún er ekki
síður skemmtileg en fróðleg, °&
mun hún ávallt verða talin merk-