Eimreiðin - 01.10.1957, Side 82
314
EIMREIÐIN
reynsluleysi unglingsins sem dáir
tæknina og verður á að líta á a£-
ann se n hálfgildingsaflagshró gam-
alla tíma og hugsunarháttar. Lýs-
ingin á hamskiptum gamla manns-
ins á leiðinni til lands og raunar á
siglingunni sjálfri er gerð af mik-
illi listrænni tækni og á sér sál-
ræn rök, sem þagga niður öll mót-
mæli gegn því, hvort slík sigling
gæti verið möguleg. Hið drama-
tíska og táknræna nýtur sín í fyllsta
mæli, hvað sem bláköldum veru-
leikanum líður.
Jónas Árnason sýnir þarna, að
hann býr yfir meiri skáldlegum
og listrænum möguleikum en fram
að þessu liafa komið í ljós á lians
annars geðþekka rithöfundarferli.
Guðm. Gislason Hagalín.
Friðjón Stefánsson: FJÖGUR
AUGU. Heimskringla 1957.
Friðjón Stefánsson hefur þann
stóra kost, að hann er vandvirkur
og enginn málskrafsmaður. Hann
kann oft að hefla og snyrta smá-
sögu, þar til liann liefur náð þeim
tilgangi, sem hann ætlaði sér og
efni standa til.
í bók þessari, sem er 159 bls.,
eru 14 stuttar sögur. Beztu sögurn-
ar eru „Fjögur augu“, „Hildigunn-
ur“, „Sinustrá“, og „Sumarmorg-
unn“ — allt góðar sögur. Þessar
sögur eru allar mjög vandlega fág-
aðar og bera einkenni þess, að
góður rithöfundur liefur farið um
þær nærgætnum liuga og liönd.
„Síðasta tromp" og „í húsi líkkistu-
smiðsins" eru vel gerðar sögur,
einkurn liin síðarnefnda. Aðrar
sögur í bókinni finnst mér ekki
ná sama árangri; þó verð ég að
segja það, að „Heimspekingurinn
og skáldið" og „Marzbúinn" eru
báðar betri en í meðallagi. Aðeins
þrjár sögur, „Yfir landamærin“,
„Sonur er mér fæddur" og „Sólar-
geisli í myrkri“ eru, held ég, lítils
virði, þótt betri séu þær en rnargt,
sem birt hefur verið á prenti a£
líku tæi. í sögunni „Blóm“, er sagt
að setningin „það var og“ sé fund-
in upp af Kiljan. Þetta er rangt.
Ég heyrði menn segja: „Það var
og“ áður en Iviljan lærði að skrifa.
Annars er sagan „Blóm“, svo og
sagan „Yfir landamærin". sem áður
er ne'fnd, um athyglisverð efni, en
liöf. liefur ekki tekizt að gera úr
því það, sem þurfti til þess að ná
árangri.
Yfir höfuð er bókin höfundi til
sóma, þegar á allt er litið, og ma
vonandi vænta fleiri góðra verka
frá honum.
Þorsteinn Jónsson.
PRENTUN Á: PAPFtR • PAPPA ■ TAU » GLER ■ VIB ^
FJ'O'LFRE NTr
SKIPHOLT 5
SIMI 1-9909
málmá~htrttn5 • PÁPpnr mn-'rwzm