Eimreiðin - 01.05.1965, Page 18
Dálítil samantekning um íslandsför
Stephans G. Stephanssonar 1917
Eftir
Finnboga Guðmundsson.
Nú þegar menn fara óðum að tygja sig til íslandsfarar, vænti ég, að
ekki verði úr vegi að rifja ögn upp þá för, er einna bezt hefur verið
gerð að vestan hingað heim, för Stephans G. Stephanssonar, er liann
fór sumarið 1917 í boði ýmissa félagssamtaka og einstaklinga á ís-
landi. í þeirri för urðu til mörg fögur og merkileg kvæði, og verður
vitnað til sumra þerira hér á eftir.
Þótt hugmyndin um að bjóða Stephani til Islands væri gömul,
varð ekki af framkvæmdum fyrr en þetta. Stephani barst boðið
snemma árs 1917, og þekktist hann það brátt. Var ákveðið, að hann
kæmi heim með Gullfossi frá New York og áætlað, að ferð l'élli í maí.
í bréfi einu, er hann skritaði skömmu eftir að törin var ráðin, segir
hann m. a.: „Að heimför hafði ég oft leikið mér áður í ímyndaninni,
en alvörulítið og oftast sem gamandraum, og aldrei ;í þann hátt, sem
nú er komið.“
Seinna í bréfi (19. marz 1917) til eins fornvinar síns vestra, Eggerts
Jóhannssonar, fyrrum ritstjóra Heimskringlu, segir hann, er hann
minnist fararinnar:
,,[Ég] hlakka til og hálfkvíði við að verða vinum mínum von-
brigði, eiga orðstír, sem ég varla veld. En hvað um það, mér þykir
skárra að verða þá að glóp en að gjalti.“
Þegar Eggert fékk bréf Stephans, hefur honum þótt þörf á að
hvetja hann dálítið, og birti ég hér kaila úr bréfi Eggerts til Stephans
25. apríl 1917:
„Jú, ég hafði frétt um væntanlega íslandsferð þína, áður en bréf
þitt kom. ög trúðu mér, ég gladdist af þeirri fregn og svo af fullviss-
unni um það í þínu bréfi, margra hluta vegna. Austur-íslendingar,
eða stofnþjóðin, á þér gott að gjalda, ekki síður en Vestur-íslending-