Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1969, Blaðsíða 14

Eimreiðin - 01.05.1969, Blaðsíða 14
84 EIMREIÐIN greiða andvirðið, þegar við kom- um heim, sagði hann. — Það skal aldrei verða, að ég láti þér eftir ambáttir mínar og Kormlöðu sel ég ekki. Krefst ég þess eins, að þú látir hana í friði. Kormlöð, komdu með mér, svaraði hann snúðugt. — Ég fer heim með Náttfara en ekki með þér, svaraði hún og gekk upp að hlið Náttfara. Þá sótroðnaði Garðar af reiði og hreytti út úr sér. — Ætlar þú ekki að hlýða mér? Það skal þér aldrei haldast uppi. Hann stikaði að henni og þreif í öxl hennar. En hún gaf sig ekki, stóð kyrr og spyrnti á móti. Þá sneri Náttfari sér að honum og sagði: — Það er mér að mæta, ef þú ætlar að leggja hendur á Korm- löðu. Þá sleppti Garðar konunni skyndilega og réðst á Náttfara. Náttfari tók hraustlega á móti og ekki höfðu þeir lengi tekizt á, þegar það var ljóst, að Náttfari hafði í öllum höndum við hann. En Garðar hamaðist þó sem óð- ur væri. Lauk þeirra viðureign með því, að Garðar féll og lét Nátfari kné fylgja kviði og þjarmaði að honum um stund. Svo stóð hann upp og sleppti honum og gekk til Kormlaðar, og fóru þau bæði þegjandi aftur út á Höfðann. Þau sáu, að Garðar stóð upp hálf dasaður og hélt í áttina til skálans. Trúði Kormlöð þá Náttfara fyrir því, að Garðar sæktist eftir blíðu hennar, en hún hefði and- styggð á honum, því að hún vissi að hann vildi aðeins njóta henn- ar um stundar sakir. Þótti þeim nú minni von um að fá að njót- ast en áður. Eftir þetta uppgjör leitaði Garðar ekki á Náttfara að fyrra bragði. Hann sýndi honum að vísu fálæti, en var það skynsam- ur, að honum var ljóst, að ekki mátti koma upp opinbert ósam- lyndi í þessum fámenna hópi, og dró sig því í hlé, þegar hann rak sig einnig á ósveigjanlegan vilja Kormlaðar. Þann vilja treysti hann sér ekki að beygja. Og svo var það nokkru síðar eitt tunglskinskvöld, þegar Náttfari gekk með Kormlöðu þar dálítið inn fyrir víkina, að hann varpaði því fram við hana, hvort þau ættu ekki að verða eftir, þegar skipið léti úr höfn með vordög- um. Hún var þegar hrifin af hug- myndinni. Hún stóð þarna við hlið hans dökk yfirlitum með brún glampandi augu og ljóm- andi af lífsfjöri. Hún var þrótt- mikil og hugrökk að eðlisfari og vildi bjóða öllum hættum birg- inn, ef hún aðeins fengi að lifa í frelsi með manninum, sem hún elskaði. Því að hún óttaðist, að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.