Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1969, Blaðsíða 71

Eimreiðin - 01.05.1969, Blaðsíða 71
UMRÆÐUEFNl RITHÖFUNDAPINGS 141 undanna eykur stórlega arðbær umsvif í þjóðfélaginu, þótt rithöf- undarnir sjálfir beri minnstan hluta af þeim arði. Rithöfundaþingið leggur til: að 10 ára tímabilið frá níu alda afmæli Ara fróða (1968) til átta hundruð ára afmælis Snorra Sturlu- sonar (1978) verði notað til að efla verulega myndarlegan bók- menntasjóð tengdan nöfnum þessara andans stórmenna tveggja. Bókmenntasjóður Ara og Snorra yrði í vörzlu Rithöfundasambands- ins og hlutverk hans að bæta aðstöðu íslenzkra höfunda til að skapa nýjar bókmenntir. Bókmenntasjóðnum mætti afla tekna m. a. með eftirtöldum leið- um: 1. Fyrntur ritréttur renni til Rithöfundasambands íslands og tekj- ur af áður óvemduðum verkum í bókmenntasjóð. Eins og lögum er nú háttað, lýkur verndarskeiði hugverka 50 árum eftir lát höfundar. Eftir það getur hver sem er gert sér þau að tekjulind. Þess eru nöpur dæmi, að óvernduð ritverk séu beinlínis notuð til þess að skaða lifandi höfunda í baráttu þeirra fyrir viðunandi aðstöðu til ritstarfa. Það þætti slæm hegðun, ef bónda væri meinað að njóta þess, sem fyrri landsetar hefðu erjað jörðinni til góða, en reynt væri þess í stað að snúa verkum þeirra honum til tjóns. Iðulega kemur fyrir, að verkum látinna skálda er herfilega mis- boðið í útgáfum og flutningi, án þess að nokkur fái rönd við reist. Engum væri betur treystandi en samtökum rithöfunda til að gæta sóma látinna höfunda, og allir réttsýnir menn hljóta að viðurkenna, að bæði væri sangjart og fagurt, að verk liðinna skálda héldu sí- fellt áfram að stuðla að sköpun nýrra bókmennta. 2. Mismunur á tolli bóka- og blaðapappírs. Um alllangt skeið hefur verið lagður 30% tollur á prent- og bókbandspappír, en 4% tollur á dagblaðapappír, og erlendar bæk- ur eru tollfrjálsar. Þetta veldur því, að æsiblöð og sorprit, sem prentuð eru á dagblaðapappír, njóta sérstakra fríðinda, en bækur íslenzkra höfunda verða dýrari en vera þyrftu og standa hallari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.