Eimreiðin - 01.05.1969, Blaðsíða 48
118
EIMREIÐIN
200.000 rúmmetrar steinsteypu, 4500 tonn af járni. Til að flytja alla
þessa steinsteypu í einu hefði þurft um 24.000 vagna, sem myndað
hefðu 200 kílóm. langa lest. Ef hinum sjötíu og þremur hringlaga
kerjum, sem notuð eru í garðana og eru 12j/2 nretri í þvermál, hefði
verið raðað hverju upp af öðru, hefði þar risið 900 m hár turn. Kran-
inn, sem lyftir þessum kerjum og lætur á sinn stað í sjónum, er sá
stærsti sinnar tegundar í heimi; hann vegur 1100 tonn. Er hann
smíðaður í skozkri skipasmíðastöð.
Síðan fiskihöfnin var formlega opnuð fyrir tíu dögum, hafa að
jafnaði komið hingað 50-60 vélbátar á dag. Þannig virðist lítill vafi
leika á því, að Hanstholm verði arftaki fiskiþorpanna á hafnlausu
sandströndinni.
Þetta er þriðji og síðasti dagurinn okkar í Lyngbæ. Þótt veður-
guðirnir hafi ekki verið okkur sérlega hliðhollir þessa daga, erum
við harla ánægð með dvölina og margvíslegri reynslu og þekkingu
ríkari. Um kvöldið erum við sannfærð um, að við munum skilja við
Lyngbæ með talsverðum söknuði
Morguninn eftir vöknum við í sólskini og fyrirtaks veðri. Við
opnum stórar vængjadyr á stofunni, meðan við ræstum og lögum
til í bústaðnum. Veður hefur ekki leyft það fyrr, en það gleður okk-
ur að sjá, hvernig þægilega búin stofan og grasflötin fyrir framan
getur orðið eitt. Sem snöggvast renna á okkur tvær grímur. En
ekki dugir að doka; við eigum enn mikið ferðalag fyrir höndum.
Við tökum saman farangur okkar, lokum öllum dyrum og glugg-
um sem bezt, og ökum síðan heim til þeirra Rögehjóna til að skila
lyklum og þakka fyrir gestrisni og góða viðkynningu. Viðdvöl okkar
í Lyngbæ er lokið. — ENDIR.