Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1969, Blaðsíða 43

Eimreiðin - 01.05.1969, Blaðsíða 43
I'ISKVF.IÐAR VIÐ SANDSTRÖNDINA 113 og horfi á bátana tekna á land. Þeir keyra hiklaust upp í sand- inn og stinga nefinu í; síðan er vírinn tengdur í stefnið og voldug vindan dregur allt á land upp, bát, menn og afla. Ekki virðist mér veiðin mikil eftir átta til tíu tíma útivist, varla meira en tonn þegar bez lét. En vitanlega fer aflinn eftir vertíð og veiðarfærum. A þessum tíma, í septembermánuði, er veiðin hálfgert skrap. Fiskað er með alls konar veiðarfærum frá sandströndinni, línu, herpinót, dragnót og flotvörpu, og fer það eftir árstíðum og von fisktegunda. f Norðursjó og Skagerak er margs konar fiskur, en mest er veitt af þorski, ýsu og flatfiski. Makríll er og mikið veiddur, og síldveiðar eru drjúgum stundaðar, þótt ára- og áratugaskipti séu að þeim hér eins og víðar. Vinur okkar Jens Röge, fiskimaðurinn, sem hefur allan veg og vanda af Lyngbæ, kemur í heimsókn undir kvöldið. Hann gætir sumarhússins afburða vel fyrir eigandann, Kelvin Lindemann, sem lengst af er víðs fjarri, og í fyrstu dettur okkur í hug, að hann sé kominn til að líta eftir og athuga, hvort allt sé með felldu hjá okkur í kotinu og ekkert hafi farið úrskeiðis. En fljótlega kemur á daginn, að hann á það erindi að bjóða okkur að drekka kaffi- sopa með þeim hjónunum um kvöldið. Við þökkum þetta vingjarn- lega boð, slíkt er ekki algengt, þótt dvalið sé í sumarhúsi í nokkra daga. Vafalaust njótum við þar okkar sameiginlega vinar, Kelvins Lindemanns. Ég er feginn þessu boði, því að það er harla margt við- víkjandi fiskveiðum og lífi fólksins hér á ströndinni, sem ég vil gjarnan fræðast um. Auk þess hef ég gaman af að glíma við að skilja hina sérkennilegu józku Jens Röge. Það rignir um kvöldið eins og fyrri daginn, og þótt örstutt sé að fara, búumst við kápum og regnhlífum. Rögehjónin taka okkur hjónum og piltunum tveimur með einstakri viðmótshlýju og gestrisni. Þau búa í litlu, snotru steinhúsi við veginn, sem liggur í þorpsröndinni og allt niður að fiskhúsunum á sjávarkampinum. Annars er Tókaströnd aðeins fáein hús, og þannig eru flest fiskiþorpin við Kveinstafaflóa; þau eru örsmá. Talið berst að fiskveiðum og lífi fólksins á ströndinni. Sjálfur hefur Jens Röge lifað tvenna tímana, hann er nú kominn yfir sex- tugt og hefur alla tíð átt heima hér á Tókaströnd. Saga hans er saga fiskimannsins nægjusama, sem hirðir lítt um átök og umbrot utan síns verkahrings, en kann þó furðu góð skil á hræringum þjóðlífs- ins og veltingi veraldarinnar. Hann hefur séð bátana stækka, vél- s
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.