Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1969, Side 19

Eimreiðin - 01.05.1969, Side 19
HIÐ DULDA LÍF 89 að leitum hjartans leynda máls, og látum orðin streyma sönn og frjáls! Guð, sem það sá, hve barnaleg þau yrðu metorð manns — hvað mundi villa sýn á leiðum hans, að hvers kyns ófrið magna mundi hér, og mannsins eðli næstum breyta í sér — að forða yrði innra manni hans frá yfirborðisins síhvikula leik, og lífsins köllun láta hann hlýða þar. í djúpi sálar lífs vors elfu lét hann líða fram á hennar eigin braut, sem vanrækt er og ósýnilegt oss; svo dulinn strauminn ekki gætum greint, en gerðum okkur hugmyndina þá: að mestu leyti í blindni að bærumst hér, þótt beri hann oss til eilífðar með sér. En oft, þar sem hér umferðin er mest, svo oft í baráttunnar gný, oss grípur þrá að geta öðlast sýn vors grafna lífs og skilninginn á því, og mega kröftum vorum verja í það að vera að leita réttu marki að; og hjartans leyndardóm er löngun vor að kanna, er ákaft slær og hugans öldur djúpt í brjósti ber — að vita hvaðan lífið er og hvert það fer. Um eigin hug þá margur leggur leið í leit, sem aldrei takmarkinu nær. Á ótal sviðum ganga vor var gerð og geislar andans lýstu vora ferð, en varla eina ofurlitla stund á eigin braut, að værum þá við sjálf — ei tilfinningar gátum leitt í Ijós, sem lifa innst í brjósti sérhvers manns og ætíð streyma í undirvitund hans.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.