Eimreiðin - 01.05.1969, Qupperneq 37
háskólabréf frá lacanema
107
félagstengsl með frjálslegum samskiptum við stúdentana. Þannig nytu
þeir að staðaldri samskipta við yngra fólk óþvingaðir af þeim tvískinn-
ungi, sem embættisstaða úti í þjóðfélaginu leggur almennt á menn. Og
nemendur nytu samskipta við menn, sem störfuðu samfellt að íhugun
hlutlægra fyrirbæra.
Á Islandi er vald stjórnmálamanna mikið. Þess vegna er meira en
meðalnauðsyn, að fyrirlestrahald sé ,,hreint“, að kennsla almennt sé
sem málefnalegust og að almenningur hafi sem greiðastan aðgang að
mönnum, sem leggja sig fram um fölskvalausa miðlun upplýsinga.
Armann, ég viðurkenni að ég fann oft á tíðum til hræðslu undir
fyrirlestrum þessa vetrar. Og sú baráttuhvöt, sem þá vaknaði jafnframt,
kom í veg fyrir að ég ánetjaðist efninu. Hefði ég brugðist við eins og
eðlið bauð mér, hefði ég annaðhvort verið fluttur burt í böndum eða
verið vikið úr skóla. Hvorugt var æskilegt eins og aðstæður voru. Og
milli okkar var ekkert talsamband. Þess vegna varð úrkosturinn sjálfsbæl-
ing.
Þann úrkost hafa fleiri valið. Hinn dæmigerði maður innan skól-
ans er fámáll, einsýnn, fáfróður um málefni utan síns fags. Ræðir
hinsvegar sína grein jafnan glottandi. Umsögn eins þeirra: „Drifafl mitt
að prófum er, að nái ég þeim gefst mér tækifæri til að líta niðurá þá,
sem á etftir mér eru.“ Þessi karakter er skapaður af þeirri óbrúuðu gjá,
sem er milli kennara og nemenda.
Einhverskonar stjórnmálafélög eru innan skólans; tveggja flokka
kerfi, sem í raun er endurskin vinstri og hægri sinnaðra stjórnmála-
stefna þjóðfélagsins. Fundarefni þeirra eru deilur um orðalag, nefnda-
skipun og önnur formsatriði; fundirnir virðast fremur til þess ætlaðir
að fullnægja þeirri sameiginlegu þörf einstakra sjálfsdýrkenda að fá
tækifæri til að dvelja í ræðustól gagnvart áheyrendum, lieldur en liitt
að koma á framfæri málefni og afla því fylgi með rökstuðningi. Fundir
þessara félaga eru jafnan fámennir og setnir sömu mönnum; málgögn
félaganna, Vaka og Stúdentablaðið, eru að efni til barnaleg háðskrif
um flokksandstæðinga, gjörokuð 'af stílbrigðum leiðara dagblaðanna,
ennfremur skrif um hagsmunamál stúdenta, þar sem eru námslán, en ef
ekki námslán, þá hjónagarður.
Háskólinn er byggður og rekinn með fyrir augum upplýsinagmiðl-
un með fyrirlestrahaldi um hin ýmsu fræði. Önnur starfsemi, svo
sem ránnsóknir, verklegt nám og bókamiðlun byggist á slíkum kjarna.
Þar sem fyrirlestur er aðferð til miðlunar almennra (átoríséraðra)
sanninda, virðast í fljótu bragði allir vafnigar vera til trafala og óper-
sónulegur blær á innréttingu staðarins, jafnt sem framkomu prófessor-
anna, vera í samræmi við tilganginn. Svo er þó ekki.
Háskólabyggingar í Oxford og Eton eru að vísu drungalegar í inn-
viðum sínum; miklir og djúpir skuggar, steinfletir án tilbrigða og dökk-