Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1969, Qupperneq 59

Eimreiðin - 01.05.1969, Qupperneq 59
KVEÐJUÁVARP FLUTT í RÍKJSÚTVARPIÐ getið afkvæmi þessara eybornu árstíða. Innra með okkur búa vor Islands, vetur og sumur, ekki að- eins þau hin fáu, er við höfum lif- að, heldur einnig vetur, vor og sumur langt fram úr öldum, arf- ur, sem við ávöxtum í lífi okkar og breytni, eftir því sem við erum drengir til, hver og einn, og sem líf okkar og breytni er ávöxtur af.“ En á ferðum okkar um landið höfum við hjónin þó eins og eðli- legt er, hvergi fundið eins til djúp- stæðra tegnsla okkar við móður- moldina eins og á ættarslóðum konu minnar austur í Mýrdal og á æsku- og ættarstöðvum mínum austur í Reyðarfirði. Þar hafa fleyg orð Stephans G. Stephans- sonar orðið okkur að lifandi og áhrifamiklum veruleika: Og það er sem holtin sjálf hleypi i mann þrótt, þar hreystiraun einhver var drýgð, og svo er sem mold sú sé manni þó skyld, sem mæðrum og feðrum er vígð. Á ferðum okkar hér heima höf- um við komið á ýmsa hina merk- ustu sögustaði landsins, þar sem við höfum heyrt þyt sögunnar í lofti og raddir hennar hljóma í eyrum. Á þeim stöðum hafa ljóð- línur séra Matthíasar og sannindi þeirra orðið okkur rík í huga: Saga þín er saga vor, sómi þinn vor æra, tár þín líka tárin vor, tignarlandið kæra. 129 Og þegar ég af sjónarhóli hinna merkustu sögustaða lands vors hefi rent augum yfir farinn veg þjóð- ar vorrar, séð í svipmyndum bar- áttu og sigurgöngu hennar, hefi ég, með heitum þakkarhug, minnst djúpsærra og markvissra orða Jóns Magnússonar: Því gat ei brostið ættarstofninn sterki, þótt stríðir vindar græfu aldahöf, að fólk, sem tignar trúmennsk- una í verki, það tendrar eilíf blys á sinni gröf. Skáldið bregður hér birtu á það grundvallaratriði, hvers vegna þjóð vorri tókst að standa af sér storma aldanna og ganga sigrandi af hólmi úr aldalangri baráttu sinni. Það var trúnaðurinn við hið bezta í henni sjálfri, sem bar hana fram til sigurs. Minnugur þess hef ég bjargfasta trú á framtíð hinnar íslenzku þjóðar, og á hæfileika hennar til þess að sigrast á þeim erfiðleikum, sem á vegi hennar eru og kunna að verða í framtíð- inni. Þessi heimferð okkar hjónanna hefir orðið okkur bæði framúr- skarandi ánægjuleg og lærdómsrík um margt. Hún verður okkur í einu orði sagt, ógleymanleg. Og það eigum við að þakka hinum frábæru viðtökum, sem við höfum átt að fagna allsstaðar hér heima á ættjörðinni. Við þökkum forseta íslands, ríkisstjóminni, og öðrum opinberum aðilum, sæmd og vin- semd af þeirra hálfu. Biskupi ís-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.