Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1969, Page 74

Eimreiðin - 01.05.1969, Page 74
144 EIMREIÐIN nema þar eru keypt 1000 eintök og kemur engum þar í landi til hugar , að frá henni verði horfið að fenginni reynslu. Þetta mundi gerbreyta aðstöðu íslenzkra höfunda til að fá bækur sínar gefnar út og sómasamleg höfundarlaun fyrir þær, jafnframt því sem stórhækkaði risið á íslenzkri bókaútgáfu, þegar útgefendur þyrftu ekki lengur að láta óvissuna um sölumöguleika fæla sig frá að gefa út jafnvel hinar ágætustu bækur. Mest væri þó um vert, að bókakostur safnanna yrði stórum íslenzkari, yxi að gæðum og efldi lestrarþroska fólksins, sem söfnin eiga að þjóna. íslenzka ríkið hefur um árabil keypt tiltekinn fjölda eintaka af öllum dagblöðum landsins til að létta þeim róðurinn. Sambærileg- ur stuðningur við bókmenntirnar er knýjandi nauðsyn. 2. Frjáls samningsréttur um bókasafnsgjaldið. Það er augljóst mál, að notkun íslenzkra ritverka án endur- gjalds dregur úr sölu þeirra á bókamarkaðnum og veldur höfund- um beinu fjárhagstjóni, sem er hreint ekki lítið. Ef söfn væru ekki til og aðeins fimmti hver maður, sem nú hefur not bókar í söfnum, keypti þó ekki væri nema eina bók á ári eftir íslenzkan höfund til að bæta sér skaðann væri það tvöföldun á sölu bóka þeirra eða meira. Fyrir þetta tjón eiga höfundar rétt á bótum frá samfélaginu. Ríkið viðurkenndi loksins bótaréttinn með lögum frá 29. apríl 1967. En eftir er að koma sér saman um sanngjamt hlutfall milli tjónsins og tjónabótanna. Hingað til hefur ríkið skammtað höfundum það, sem Alþingi gott þykir. Löggjafinn telur lestrarfrelsi borgaranna svo mikilvægt, að hann veitir þeim frjálsan aðgang að bókum í almenningssöfnum. Þetta ber að virða. Hitt er rangt, að löggjafinn skuli ekki veita höf- undum samningsfrelsi um greiðslu fyrir afnot af verkum þeirra, um verklaunin. Hitt væri sök sér, þótt svo væri ákveðið, að aðilar gætu lagt mál í gerð, ef samningar tækjust ekki með ríkinu og Rit- höfundasambandinu, svo sem fordæmi eru fyrir í hliðstæðum til- vikum. 3. Greiðsla til höfunda fyrir efni í kennslubókum. Á síðastliðnu ári skrifaði stjóm Rithöfundasambandsins for- stjóra Ríkisútgáfu námsbóka og óskaði viðræðna um greiðslu fyrir

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.