Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1969, Side 89

Eimreiðin - 01.05.1969, Side 89
RITSJÁ 159 kennslubók í skólum í sambandi við kennslu í almennri félags- fræði. I. K. Sveinn Scemundsson: í STRÍÐI OG STÓRSJÓUM. Nýjar frásagn- ir um íslenzka sjómenn á friðar- og stríðstímum. Setberg. Sveinn Sæmundsson blaðafull- trúi Flugfélags íslands hefur hin síðari ár látið allmikið að sér kveða á ritvellinum og meðal ann- ars skrifað nokkrar bækur um sjó- sókn og sjómennsku, og hafa þær hlotið vinsældir. Einnig er Sveinn vel þekktur af þáttum er hann hef- ur flutt í útvarpið, þar sem hann hefur rætt við ýmsa sægarpa og menn úr fleiri starfsgreinum. Síðasta bók Sveins heitir í stríði og stórsjóum og greinir þar frá ýmsum atburðum í lífi og störfum íslenzkra sjómanna, bæði á friðartímum og þó einkum í síð- ustu heimsstyrjöld. Þó sumt af þeim atburðum, sem þar er greint frá hafi borið fyrir í fréttum á þeim tíma er þeir gerðust, eru þeir nú mörgum gleymdir, og þess vegna eru marg- ar frásagnir í bókinni, ekki aðeins upprifjun, heldur og merkar heim- ildir um ýmsa örlagaríka atburði, sem átt hafa sér stað í störfum ís- lenzku sjómannanna á styrjaldar- árunum, auk þess er margt dregið fram í frásögnunum, sem hvergi hefur verið sagt frá áður. Lengsta og ýtarlegasta frásögnin í bókinni er af flutningaskipinu Arctic og áhöfn hennar, en þar er rakin saga skipsins frá því er það komst í eigu íslendinga og unz það fórst við Löngufjörur á Snæ- fellsnesi. Þessi þáttur nefnist Ör- lagaþung varð Arctic, og er það vissulega réttmæli. Þarna er brugð- ið upp mörgum greinilegum myndum af óhugnaði stríðsáranna, greint frá tortryggni, misskilningi og mannúðarleysi, svo sem bezt kemur fram í frásögninni af hand- töku Arctic-manna og vist þeirra í fangabúðum Breta á Kirkju- sandi. Þó að hér hafi sérstaklega verið getið frásagnarinnar af Arctic eru engu siður athyglisverðir ýmsir af öðrum þáttum bókarinnar, en þeir eru alls 9. Meðal annars er þar ýt- arleg frásögn af björgun manna á vélbátnum Kristjáni, er árið 1940 hröktust í tíu sólarhringa í vélar- vana bát um hávetur, og allir töldu af; sagt er frá því er M/s Hekla var skotin niður á leið til Ameríku og ýmsum öðrum sjóslysum og svaðilförum, bæði á friðar- og stríðstímum. I. K.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.