Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1969, Page 93

Eimreiðin - 01.05.1969, Page 93
HUSIMÆÐISMALASTOFNUN RÍKISINS AUGLÝSIR *----------------------------------------'i Húsnæðismálastjórn hefur ákveðið að veita á tímabilinu 1. október til 31. desember n.k. lánsloforð (fyrri hluta lán) til þeirra einstaklinga, sem áttu hinn 17. þ.m. fullgildar umsóknir hjá Húsnæðismálastofnun ríkisins, innkomnar fyr- ir 16. marz s.l., til íbúða, sem verða fokheldar á tíma- bilinu 1. ágúst til 31. desember 1969. Lánsloforð þessi koma til greiðslu frá og með 1. febrúar 1970. Húsnæðismála- stjórn hefur einnig ákveðið að veita framkvæmdaaðilum í byggingariðnaðinum, sbr. 1. nr. 21, 27. apríl 1968, láns- loforð (fyrri hluta lán) til þeirra íbúða, sem þessir aðilar gera fokheldar á tímabilinu 1. ágúst til 31. desember 1969, enda skili þeir vottorðum þar um til stofnunarinnar fyrir árslok og tjái sig samþykka skilyrðum þeim fyrir lánum þessum, er greinir í téðum lögum. Lánsloforð þessi verða veitt á tímabilinu 1. október til 31. desember n.k., eftir því sem hlutaðeigandi byggingar verða fokheldar, og koma til greiðslu eftir 1. febrúar 1970. Að gefnu tilefni skal tekið fram, að einstaklingar, sem eiga óafgreiddar umsóknir um íbúðarlán, fá nú ekki skrifleg svör við umsóknum sínum fyrr en lánsloforð eru veitt. Hins vegar geta umsækjendur jafnan gengið út frá því, að umsókn fullnægi skilyrðum, ef umsækjanda er ekki til- kynnt um synjun eða skriflegar athugasemdir eru gerðar af Húsnæðismálastofnuninni. Auk þess skal umsækjendum bent á, að þeir geta að sjálfsögðu ætíð leitað til stofnunar- innar með fyrirspurnir vegna umsókna sinna. Reykjavík, 26. september 1969. ; ________________________________________ HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN RÍKISINS, LAUGAVEGI 77, SÍMI 22453

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.