Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1971, Page 10

Eimreiðin - 01.09.1971, Page 10
74 EIMREIÐIN ars til fjandans! Ég er nú bara verkamaður og þú skalt ekki halda að ég skammist mín nokkuð fyrir það. Þú veizt það væni minn að við verkamenn erum 'elzta stétt jarðar, undirstaða hvers þjóðfélags og vinnum göfugasta starf í víðri veröld“. Númer þrjú: „Verkamenn urðu fyrstir til og munu deyja fyrstir út“: „Þar skjátlast þér fífl. Jafnskjótt og helvítis vélarnar ætla að bola okkur frá, — þá kemur byltingin, sko þú skilur — kommónisminn. Allir verkamenn verða kommónist- ar í byltingu en þangað til stjórn- um við framkvæmdum auðvalds- ins. Já, já, við höfum völdin í okk- ar höndum. Annars h’ef ég nú ekki áhyggjur af þessu og hérna er mað- ur við andlega og líkamlega upp- lyftingu og uppbyggingu. Undir- búningur að nýjum átökum og af- rekum. Ónei það eru nú ekki allir sem flýja þegar í harðbakkann slær. Maður gefst nú ekki upp þó í móti blási. Ég býð öllu byrginn, — læt allt lönd og leið, — læt skeika að sköpuðu. Ekki kemur mér til hugar að st'eypa mér niðrí gjá, þótt ég sé í vandræðum. Ég er nú bara verkamaður og þeirra líf er nú sko bara enginn dans á rósum; ónei við höfum rétt oní okkur og á, rétt til hnífs og skeiðar. En mað- ur tekst bara á við erfiðleikana, berst bara við mótvindinn. Það eru barabarabarasta auntingjar sem flýja af hólmi. Svo getum við alltaf farið í verkfall þegar okkur líður illa. Ojájá við höldum í taumana á þjóðfélagshestinum . . sko . . haha.“ Hann sýpur drjúgum á; hellir mestu niðrá sig. Númer tvö situr, heyrir en virðist ekki lilusta. Númer þrjú: „Já þið hafið völd- in í þjóðfélaginu og getið því lifað áhyggjulausir. Og fyrir hvað lif- irðu svo?“ „Fyrir hvað lifi ég? Errðanú spurning. Ég liíi bara fyrir lífið. Ég nýt lífsins gæða.“ Ræsking. „Ég skal segja þér kunningi að þeir sem drepa sjálfan sig .. . þeir g'era barasta of miklar kröfur til lífsins . .. Nei bíddu nú við. Það er lífið sem gerir of miklar kröfur til þeirra og þegar þeir geta ekki staðið undir þeim, þegar jteir geta ekki axlað byrðina sem lífið l'eggur á herðar þeim þá gefast þeir bara upp, flýja allt saman. Já slíkir menn eru til einskis nýtir, eru einskis virði . . . ekki krónu virði ..“ Hann hristir hausinn í lineyksl- an og fussar. „Nei vinur minn, maður verður að reyna að lifa líf- inu eins og það er ... því að lífið það er nú einu sinni sona sko ha. Ég er nú bara verkamaður en ég lifi mínu lífi samt.“ Númer þrjú: „Og hvernig er það?“ „Nú ég stunda mína vinnu; mæti korteri of s'eint á moddnana og hætti korteri of fljótt á kveldin sko hahaha. Ég fæ hýruna á föstu-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.