Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1971, Síða 14

Eimreiðin - 01.09.1971, Síða 14
78 EIMREIÐIN andi á mig; nú þyrfti ég að taka á, leggja mig fram. Síðan lagði ég stund á framhalds- nám. Mér þótti gaman að glíma við verkefnin sem fyrir mig voru lögð. Ég fann gildi í því að kryfja mál til mergjar, skrifa ritgerðir um strembin efni, leysa þung dæmi. Ég setti mér ýmis takmörk að keppa að; 'ekki aðeins að ná sem hæstum tölustöfum í einkunnabók- ina, heldur var mér mikilvægara að fá rökstudda gagnrýni, skyn- samlegar ábendingar, jafnvel heimskulegar skammir og persónu- legar svívirðingar. Allt þetta veitti mér áliuga og eldmóð, ofurkapp og þrá eftir endurbótum, framför- um, hefndum og átökum. Allt stefndi þetta auðvitað að fulfkomn- un og betra hefði verið að setja markið lægra og oftar. Ég kynnti mér allt sem til greina kom að kynna sér. Ég hafði áhuga á öllu, alölfu sem skilvitlegt er. Öll- um þessum takmörkum sem ég eða aðrir settu mér náði ég. Fljótlega fór að verða erfitt að setja markið hærra og hærra. Mér héldu engin bönd. Einkunnarkerfið þrengdi að mér, ég gat ekki sprengt Jrað, því að hvað er fyrir ofan hið efsta annað en blekking. Ábendingar og krítík urðu æ sjaldgæfari unz Jrær heyrðu fortíð- inni til. Skammir og svívirðingar kennara minna og félaga urðu jafnfágætar og guðlast í himna- ríki. Þau verkefni sem ég leysti af liendi fengu tíðast sömu urnsögn: „frábært að vanda“. Mér leiddist svo þessi þögn, að eitt sinn 'er skila átti ritgerð um frjálst eíni, skrifaði ég niður setn- ingar af annarri hverri blaðsíðu fjögurra ástarareyfara. Þessar setn- ingar voru valdar með Jreim hætti, að skyrpa á blaðsíðuna og taka þá setningu sem hrákinn lenti á. Pist- ilinn nefndi ég svo „Frjálst efni“ og alhenti k'ennaranum með kurt og pí. Ég bjóst auðvitað við hinni hressilegustu skammasúpu sem myndi hleypa metnaði í mig að nýju. En úr Jrví varð ekki, Jjví að endaleysan fékk ágætan vitnis- burð: „einkar frumlegt og snjallt." Ég hafði ekki hirt að lesa Jretta í samhengi áður 'en ég skilaði og gerði það ekki heldur nú. Ég sá að snilld og frumleika var hægt að öðlast með tómum fíflaskap. Út úr hvaða þvælu og hringavitleysu mátti fá rökræna lieild, aðeins ef ímyndunarafli var beitt til Jjess að tengja saman delluna, eða þá að gömul frammistaða mín 'ein nægði til slíkra ályktana; að hér væri séní á ferð hvers heilabú væri ókryfj- anlegt fyrir kennara sem þarf að fara yfir 100 ritgerðir áður en frétt- irnar í sjónvarpinu byrjuðu. Þessi vonbrigði urðu til Jress að ég hætti námi og fór að hugsa um hvað til bragðs skyldi taka. Ég ákvað að skrifa bók. Að Jressari bók vann ég sleitulaust, lagði sjálfan mig í verkið, hugsaði ekki um ann-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.