Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1971, Side 33

Eimreiðin - 01.09.1971, Side 33
meistarinn 97 skutmiklar; karlmennirnir báru að þeim flökin. Milli stakkstæðis og fjöru lá hundur og tannaði sig el'tir morgunverðinn. Þorpsfávitinn skondraði meðal fólksins. „Galinn Matti, galinn Matti,“ sagði fávitinn. „Þegiðu Matti minn,“ sagði fólk- ið. „Allir í fisk,“ sagði fávitinn. „Vertu nú stilltur, Matti minn,“ sagði fólkið. Matti þessi var mesta gersemi. Um hann var alltaf liægt að tala, þegar önnur umræðuefni voru þrotin. Skringilegh'eit hans voru mikil. Og snemmendis varð hann hið mikla ævintýri í lífi Jrorpsbúa, en hann hafði Jrá reifabarn fundist í Jrorpslæknum — reifalaus — þar sem einhver liafði fleygt honum, var hirtur og hafði æ síðan verið öðruvísi en annað fólk — t.d. með kryppu, heilaskemmdir, málhelti, vinstri fót hægra m'egin og hinn hægri vinstra megin o. fl. Fólkið gat aldrei nógsamlega rætt útlit og afkáraskap Matta. Það var hún Stína í Vör sem hafði tekið hann uppá sína arma en hún hafði rnisst heimaling þá um vorið. En Stenka bónda hennar var uppsigað við Matta, kannski vegna Jress að hann hafði ætlað heimalinginn til frálags. Svo að hann lamdi Matta stundum. Fólk- ið sagði að hann hefði dúkkað svo oft ofaní kollinn á Matta þegar hann var lítill, að Matti hefði ekki getað vaxið uppí loftið eins og ann- að fóik heldur hefði hann vaxið út á bakinu í staðinn. Stenki í Vör var mestur kvenna- maður Jrar um slóðir. Ofanfrá Jrorpinu barst bjöllu- luinging. Það var Jrjófabjallan í dyrum verzlunarinnar. Faktorinn hafði haft hana með sér utanlands frá og sett hana upp Jrótt þjófar væru sjaldséðari en þjófabjöllur í Jressu Jrorpi. F"ólkið kunni bjöll- unni vel Jrví að hún gerði Jrað Jaægi- lega undirgefið. Þetta var fyrsta hringing morgunsins. Kona ein, b'erhent, rétti úr sér og sagði um leið og hún f'leygði frá sér fisk: „Það sver ég samtsemáður að ég sá liann Stenka í garðinum hjá Rósembergshúsinu eina nótt- ina í vetur. Það var nær jólum. „Óekkí,“ svaraði kerling," ætli hann hafi ekki verið að koma frá þér.“ „Ég segi bara Jrað,“ sagði önnur, „að það er illa gert að hafa Gunnu milli tannanna." „Krakkinn 'er lausaleiksbarn, trúi ég,“ sagði fyrri kerlinginn, hún var sköllótt. „O, tatatatata," sagði hávaxin beinaber kona og axlirnar á henni stóðu áberandi frammí kjól- inn, hún hafði ekkert lagt til mál- anna til Jressa. „Varstu að segja eitthvað, Gunn- Jrórun mín?“ spurði lítil kerlingar- hnyðra við hlið hennar mæðulega. Það var móðir hennar. En Gunn- 7

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.