Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1971, Page 43

Eimreiðin - 01.09.1971, Page 43
MEISTARINN 107 ráð að stökkva uppí loftið svo að hælarnir slóust í rasskinnarnar á honum. f loftinu hrópaði hann: „Hann hefur kveikt í.“ „Á hann piltar," sagði faðir hans hæglátlega. Þeir hlupu á hann fjórir og héldu honum. Faðir hans sagði meðan þ'eir voru að sela hann: „Hér á utanhéraðsmaður í hlut, öll gát er affarasælust. í þessum svifum kernur sá mað- ur sem utast hafði staðið reykull í spori í áttina til þeirra, nemur staðar og stendur lramaf honum spýjan svo að fólkið hrökk undan hver sem betur mátti. Fellur mað- ur þessi þegar í óvit. „Ja, nú þykir mér týra,“ sagði sonurinn Jrá og var runninn af honum berserksgangurinn. „Hér eru engin gamanmál á ferðum," sagði faðirinn. „Sjáðu," sagði gelgjan. Hún stóð við hliðina á Epla-Manga og benti upp í loftið. Reykjarlopi sveif hátt fyrir ofan Jjau og barst innyfir Jrorpið. Annar kom í ljós yfir skúrnum. Fólkið stóð í hring umhverfis manninn og starði á hann. Andlit hans var stirnað; efri vörin var dregin uppað nasarótunum og tannhold og gular tennur fram- skagandi; munnur og augu galojt- in. Kúpt ennið jók á ljótleik svips- ins. Meðan fólkið stóð Jtarna og starði kom tunga mannsins í ljós á milli tanngarðanna, hún færðist út á milli Jjeirra og hvarf svo aft- ur. G'elgjan ýtti þéttingsfast við manninn með fætinum. Henni var kippt frá og hastað á hana. Hún fálmaði Jrvalri hendi eftir Ejda- Manga og J:>au fléttu saman fingr- um; með hinni tók hún í hönd Jress sem næstur henni stóð. Við handtökin létti Jaeim örlítið og Jjau leituðu lausum höndum sínum trausts í lófum enn annarra. Þann- ig barst úrræði gelgjunnar hratt og orðalaust meðal fólksins unz það hélzt allt í hendur. Maðurinn lá í hringnum miðjum og var að reyna að segja eitthvað; tunga hans færð- ist milli munnvikanna og mjamtur barst frá talfærunum. Hundurinn kom aðvífandi og þrengdi sér inní hringinn, hann þefaði úr gini mannsins sem ]:>á dró að sér tung- una til að lnindurinn æti hana ekki. Einhver sagði: „Látið ekki hundinn jsissa á manninn," og dýrinu var ýtt útúr hringnum. Fólkið ýmist þrengdi hringinn eða víkkaði, en enginn sl'ejDpti hendi af öðrum af ótta við að hræðslan yrði lionum um megn. Svo fór fólkið að ganga allt livert á eftir öðru og hringurinn að snúast. Fyrst hreyfðist ltann örhægt, eins og fólkið væri lémagna af skömm, síðan luaðar. Loks sagði kjökurs- leg og hjáróma rödd: „Göngum við í kringum." Einhver flissaði. Orðin hófust aftur annarsstaðar í röðinni og voru bergmáluð nokkrum sinn-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.