Eimreiðin - 01.09.1971, Síða 62
JEvisaga
mikilhæfs leiðtoga
♦----------------------
Eftir
Dr. Richard Beck
Fyrir stuttn síðan barst mér í
hendur bók sú, er hér verður gerð
að umtalsefni, og var hún mér mjög
kærkomin. Bæði er það, að mér var
vel um það kunnugt, hve mikið
verk höfundur hennar lagði í það
að sernja hana, og einnig var mér
kunnugt innihald hennar og efnis-
meðferð, þar sem ég hafði lesið
hana í handriti. Við gaumgæfileg-
an lestur hennar h'efir mér orðið
það enn Ijósar, hvert merkisrit hún
er, fróðleg mjög, og skipulega og
læsilega í letur færð.
Umrædd bók ber lieitið Ævisaga
séra Jóns Bjarnasonar (Winnipeg),
og höfundur hennar er séra Run-
ólfur Marteinsson, 'er einnig var
lengstum búsettur þar í borg. Bók-
in kom út á vegum Bókaútgáfunn-
ar Eddu á Akureyri haustið 1969.
Er hér um stærðarrit að ræða, rúm-
ar 360 bls. að meginmáli í stóru
broti, að ótalinni nafnaskránni
(bls. 363-68.
Árni Bjarnason, útgefandinn,
fylgir bókinni úr hlaði með gagn-
orðum inngangi, þar sem hann rek-
ur í megindráttum ævileril og íjöl-
þætt og merkilegt starf höfundar
hennar, en hann kom víða við
sögu í kirkjumálum og öðrum
menningarmálum íslendinga vest-
an hafs. Um tildrög þessa rits hans
fer Árni eftirfarandi orðum:
„Eftir að séra Runólíur lét af
prestsskap og kennslustörfum, hóf
hann að rita ævisöguna og var það
vegna tilmæla Jónasar Jónssonar
frá Hriflu. Naut hann í því sam-
bandi nokkurs styrks úr Menn-
ingarsjóði liér heima. Mun ætlun-
in hafa verið að hann skrifaði
einnig ævisögur þeirra merkis-
manna séra Friðriks Bergmanns og
Tómasar Johnson ráðherra, ef ald-
ur og starfsorka entist til."
Því miður, varð það þó 'eigi,
vegna þess, að fyrir aldurs sakir
og hnignandi heilsufar, fékk séra
Runólfur ekki lokið við ævisögu
séra Jóns. Séra Runólfur lézt 10.
maí 1959. Að honum látnum, eins
og Árni skýrir frá í inngangi sínum,
tókst, séra Valdimar J. Eylands, ná-
kominn vinur og starfsbróðir séra