Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1972, Page 39

Eimreiðin - 01.01.1972, Page 39
EIMREIÐIN The Mersey Poets leita að hinu upprunalega og alþýðlega í ljóðinu, vilja gefa hversdagslífinu æðra gildi og yrkja blóm og gras i malbik stórborgarinnar. Ljóð þeirra eru tilviljunarkennd, rími bregður fyrir, en þó ekki er hægt að tala um neinn ákveð- inn bragarbátt. Sum ljóðin eru naumast annað en öndunaræf- ingar. Sameiginlegt einkenni þeirra allra er kitlandi húmor og geysilegt næmi fyrir því spaugilega í tilverunni, án þess þó að falla fyrir fimmaurum. Þeir eru í ætt við götusöngvarana forn- grísku, en í stað þess að syngja í húsasundum eða í úlfakreppu strætisins nota þeir Ijósvakann og hljómplötutækni nútímans til að koma söngvum sínum á framfæri. Roger McGough, höfundur Kondunær og sofðu, er fæddur í Liverpool 1937, sonur hafnarverkamanns. Hann lauk B.A.prófi i frönsku og landafræði frá háskólanum i Hull með ágætum og hóf þá kennslustörf. Fyrsta bók McGough var samansett af ^Frinck, a Life in the Day of“ (sem er stutt skáldsaga) og ljóða- flokknum „Summer with Monika“. Auk þess hefur hann skrif- að útvarpsþætfi, lesið i sjónvarp og sett saman leikþætti. Leik- ritið, The Commission, stærsta verk hans til þessa, er óvenju- lega ljóðrænt og býr yfir þjáningu sem likist trúartónlist. Mc- Gough er eilt mest lesna skáld í hópi ungra manna er rita á enska tungu. Hér birtist þýðing á ljóðinu Comecloser and Sleepnow, sem finna má i bókinni The Mersey Sound (Penguin Modern Poets 10), siðu 59. Það er kannski réttara að segja að ég hafi endur- ort ljóðið, en ekki þýtt það frá orði til orðs, enda eru i þvi orða- leikir á ensku sem þurfti að umskrifa til að halda hugsun Mc- Gough. Ljóð má túlka á hundrað vegu. Hver og einn á að skilja þau sínum skilningi. Ég ætla samt að hætta mér út á þann hála is að gera stuttlega grein fvrir Ijóðinu, ef það gæti orðið til að auð- velda einhverjum aðgang að þvi. Ljóðið hefst skömmu eftir að skáldið og vinkona hans hafa elskazt: þvi er lokið og þú liplar á hverju orði ánægð í hulu inyrkursins Næst bregður McGough upp hlutlausri mynd af þeirri værð sem flæðir yfir heiminn eftir að hlossar ástarinnar hafa fuðrað: varir sem vilja ekki meir vottur um þreytu 39

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.