Iðunn - 01.06.1889, Page 80
Stúlkan frá Bretagne,
eptir
£Ul3zé STl \cuzick.
að var kveld eitt í nóvemberinánuði, einmitt
” kveldið fyrir Katrínarmessu, að dyrnar á hegn-
ingarhúsinu í Auberive voru opnaðar, og þar kom
út kvennmaður hjer um bil þrítug að aldri. Hún
var klædd upplituðum kjól úr ull; á hofðiuu hafði
hún ljereptsskýlu, sem var eins og umgerð utan
um hið föla andlit. Hún var þykkleit í framan,
en það var þessi litlausa fita, sem leiðir af fæð-
inu í fangelsunum. Kvennmaður þessi var fangi,
sem sleppt var úr hegningarhúsinu. Fjelagar
hennar þar kölluðu hatm «La Bretonnen, eða stúlk-
una frá Bretagne.
Hún hafði verið dæmt fyrir barnsmorð. það
voru liðin rjett 6 ár síðan hún hafði verið flutt í
hegningarhúsið í lokuðum vagni. Hún fór aptur
í hin gömlu föt sín, sótti í skrifstofu fangavarðar-
ins peninga þá, er hún hafði afiað með vinuu sinni,
og stóð uú loksins frjáls með vegabrjefið sitt í
hendinni; en vegabrjeíið var til Lángres.
Póstvagninn til Langres var kominn af stað.'
Hún hjelt því til helzta veitingahússins, en var
bæði hrædd og feimin, og lá henni opt við að
hrasa. Meö skjálfandi röddu beiddist hún gisting-
ar urn nóttina, en veitingahúsið var fullt af gest-