Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1947, Síða 3

Ægir - 01.04.1947, Síða 3
Æ G I R MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS ISLANDS 40. árg. Reykjavík — apríl—maí 1947 Nr. 4-5 Davíð Olafsson: Sjávarútvegurinn 1946. Á árunum 1939—1945 mátti segja a8 styrjöldin setti mark sitt á íslenzkan sjáv- arútveg. Síhækkandi verðlag á flestum sjávarafurðum fyrstu ár styrjaldarinnar leiddi lil þess, að hagur útgerðarinnar fór mjög batnandi, enda var ekki vanþörf á því eftir áratugs þrotlausa erfiðleika af völdum sölutregðu á helztu sjávarafurðum, sem leitt hafði meginhluta útgerðarinnar á barm gjaldþrotsins. Seinni hluti styrjaldarinnar var ekki eins hagstæður fyrir útgerðina. Verðlag á fiski bátaflotans svo og á síldar- afurðunum hefur að vísu farið hækkandi, en verðlag á ísvörðum fiski á brezka mark- aðnum farið mjög lækkandi. Hins vegar hefur þróun sú, sem átt hefur sér stað hér innanlands, á sviði verðlags- og kaupgjalds- mála orðið útgerðinni mjög þung í skauti. Hefur hún Ieitt til síaukins útgerðarkosln- aðar, og þær verðhækkanir, sem orðið hafa á fiski bátaflotans, hafa hvergi nærri getað bætt upp hinn hækkandi kostnað. Til þess að koma hér á eðlilegu jafnvægi aftur, er einungis hugsanleg sú leið að færa niður Iramleiðslukostnaðinn, því að ógerningur er að gera ráð fyrir, að verðlag á afurðum út- vegsins geti farið hækkandi frá því, sem nú er, a. m. k. á hinum þýðingarmeiri afurð- mn. Framtíð útvegsins byggist á því meira en nokkru öðru, hvort þetta tekst eður ei. Afkoma sjávarútvegsins á árinu 1946 var efalaust lakari en hún hafði verið árið áð- ur. Aflabresturinn á síldveiðunum 1945 gerði jiað að verkum, að hátaútvegurinn var illa húinn undir vetrarvertíðina 1946. Sú vertíð var ákaflega misjöfn, ])ó yfirleitt mætti segja, að aflabrögð væru í betra lagi. En síldveiðarnar réðu mestu um afkomu árs- ins, eins og oft áður. Eftir hinn mikla afla- hrest á síldveiðunum árið áður höfðu menn \onað, að árið 1946 gæti a. m. k. gefið sæmilega útkomu á síldveiðunum, en raun- in varð önnur. Enda þótt aflabresturinn væri ekki eins alger, var hann þó mjög til- finnanlegur og sýnu tilfinnanlegri fyrir það, að útgerðin var almennt miklu verr undir hann búinn en árið áður, m. a. vegna þess, hversu það ár hafði brugðizt. Afkoma báta- útvegsins var því mjög erfið, þegar litið er á árið sem heild, og mun engin grein þeirr- ar útgerðar vera þar undanskilin. Um togaraútgerðina er það að segja, að enda j)ótt óhætt muni að telja afkonm hennar sæmilega, ef litið er á árið sem heild, fór ekki hjá því, að erfiðleika fór að gæta einnig hjá henni í ríkari mæli en áð- ur. Var það einkum, að verðlag fór all- mjög lækkandi á hrezka markaðnum, en þangað seldu togararnir allan þann fisk, sem þeir fluttu út ísvarinn. Varð verð-

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.