Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.04.1947, Qupperneq 12

Ægir - 01.04.1947, Qupperneq 12
106 Æ G I R um um það, hvar yfirborð lifrarinnar á að vera í mælikerunum, þegar mæling fer fram. Af þessu leiðir, að tölur þær, sem bræðslurnar gefa upp um bræðsluárangur, eru alls ekki sambærilegar og torveldar það mjög allan tapaútreikning. Væri mjög æskilegt, að bræðslurnar tækju yfirleitt upp þann sið, að vega lifrina eins og nú er gert í Vestmannaeyjum. Virðist lítil von til, að hægt verði að byggja tapaútreikning lijá bræðslunum á bræðsluárangri þeirra fyrr en vigtun lifrarinnar hefur almennl verið tekin upp. Haldið hefur verið áfram prófun á nýj- um og endurbættum bræðsluaðferðum. Ein af þeim aðferðum, sem beztan árangur hefur gefið, er hin svokallaða frystiaðferð. Er hún í því fólgin, að lifrin er fryst fyrst, siðan þýdd og tætt og loks skilin í skil- vindu eftir að hún hefur verið hituð upp í 40-—50° C. í sambandi við prófun þessarar bræðsluaðferðar, hefur reynzt nauðsynlegt að framkvæma mikinn fjölda af tafsömum hræðslutilraunum. Yrði það alll of langt mál, ef skýra ætti ýtarlega frá árangri þeirra hér. Þó skal þess getið, að allt útlit er fyrir, að lýsistöpin þurfi ekki að vera nema 1—2% af lýsismagni Iifrarinnar, þeg- ar aðferð þessi er notuð, en til samanburð- ar má geta þess, að lágmarkstöp hjá bræðslum hér á landi munu vera um 9% eins og nú standa sakir. Lýsi, sem unnið er með frystiaðferðinni, er líka að flestra dómi mun bragðbetra en gufubrætt þorskalýsi og er fullt edns vita- minríkt. Eigi skal því leynt, að aðferð þessi hlýtur að verða nokkuð kostnaðarsöm í framkvæmd, og hefur enn ekki fengizt úr því skorið, hvort hún muni skila þeim mun meira lýsi en aðrar bræðsluaðferðir, að nægja muni til að vega upp á móti aukn- um framleiðslukostnaði. Farið var til Hornafjarðar á árinu, að til- hlutan Sambands isl. samvinnufélaga, þeirra eiinda að athuga lifrarbræðsluna þar og gera tillögur um endurbyggingu hennar. í ljós kom við athugun lifrarinnar þar eystra, að hún er mjög misfeit og auðvelt er að flokka hana eftir sjónmati, í misfeita lifrarflokka. Nokkrar slíkar flokkanir voru framkvæmdar og sýnishorn tekin til Reykjavíkur til rannsóknar. Við rannsókn sýnishornanná kom fram, að A-vitamin- magn lýsis var þeim mun hærra, sem lifrin var horaðri, og reyndist lýsið úr horuðustu lifrinni jafngilt góðu lúðulýsi í þessu til- liti. Á vertíð þeirri, sem nú stendur yfir (1947), er ákveðið að horaðasta lifrin verði tínd úr lifraraflanum á Hornafirði og hún unnin sérstaklega. Þykir þetta hagkvæmt vegna þess, að lifur, sem ekki inniheldur nema 20% af lýsi eða þaðan af minna, skil- ar litlu eða engu lýsi, sé hún brædd með þeirri aðferð, sem notuð er á Hornafirði, og fer hún því að mestu til spillis, sé hún unn- in með annari lifur. Verður fróðlegt að sjá, hvern árangur þessi flokkun ber á Horna- firði, því að vafalaust má framkvæma hana viðar á landinu, þótt vafasamt sé, hvorl í nokkurri annarri veiðistöð sé hlutfallslega jafnmikið um horaða lifur og þar. Haldið hefur verið áfram rannsóknum á fúavörn netja á sama hátt og undanfarin ár. Tilraunahespur og netjagarn, fúavarið með mismunandi aðferðum, lá í sjó yfir sumarmánuðina, en það óhapp skeði, að þær losnuðu frá legufærum í fyrsta haust- veðrinu og hafa ekki sézt síðan. Er þetta í annað skipti, sem rannsóknarstofan tapar tilraunahespnm á þennan hátt, og hafa óhöpp þessi tafið það mjög, að endanlegur árangur fengist af rannsóknum þessum. Seinni hluta sumars og um haustið var unnið að tilraunum með hreinsun síldar- lýsis undir herzlu. Vorn tilraunir þessar gerðar á vegum byggingarnefndar lýsis- h.erzluverksmiðjunnar. Hér hafa verið talin upp helztu verkefni rannsóknarstofunnar á árinu 1946. Ymsu hefur þó verið sleppt, sein ástæða hefði ver- ið til að minnast á, eins og t. d. ferðalög i verstöðvar utan Reykjavíkur í þágu ýmissa aðila, upplýsingarstarfsemi, sem rekin hef- ur verið á sama hátt og undanfarin ár o. fh Fiskdeildin í Atvinnudeild háskólans starfaði með svipuðum hætti og undan-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.