Ægir

Årgang

Ægir - 01.04.1947, Side 65

Ægir - 01.04.1947, Side 65
Æ G I R 155 á tímabilinu febrúar til júni, og veitti á því tímabili 12 bátum aðstoð. Snæfell EA 740 var leigt til gæzlu við Vestmannaeyjar í marzmánuði og veitti á þeim tíma 4 bátum aðstoð. Freijja GK 275 var leigð til gæzlu í Faxa- flóa um sumarið, þar til í lok september, og veitti nokkrum bátum aðstoð á því tímabili. Finnbjörn IS 24 var leigður til gæzlu við Vestfirði 3 síðustu mánuði ársins. Veitti hann 1 bát beina aðstoð á þeim tíma. Seint á árinu 1946 höfðu verið keyptir til landsins 3 hraðbátar, er hlutu nöfnin: „Njörður“, „Baldur“ og „Bragi“, og skyldu þeir notaðir við landhelgisgæzlu hér við land. Voru menn ekki á eitt sáttir um not- bæfni þessara báta til þessa starfa, og kom aldrei til að þeir væru notaðir til gæzlu, að undanteknum einum, sem fór nokkrum sinnum til gæzlu á tímabilinu 1. febr. til 13. maí og tók þá 1 ísl. botnvörpung að veiðum i landhelgi. Um sumarið' 1946 var skipum þessum skilað aftur til Bretlands. Fyrir sildarvertíðina 1946 var vitað, að óvenju mörg skip bæði innland og erlend myndu taka þátt í síldveiðunum, og þótti því nauðsyn bera til að taka upp nokkuð aðra skipan á landhelgisgæzlunni á sild- veiðisvæðinu en tíðkazt bafði til þessa. Var i þessu sambandi settur sérstakur gæzlu- stjóri, er hafði aðsetur á Siglufirði, og skyldi bann standa í daglegu sambandi við varð- skipin á síldveiðisvæðinu og fulltrúa frá lendhelgisgæzlunni, sem settir voru í báðar sildarleitarflugvélarnar, 1 i hvora. Ein .ig halði gæzlustjórinn stöðugt sam- b.nid viö umboðsmenn skipaútgerðarinnar höfn n Norðurlands, ef þeir skyldu frétta nm einiiver landhelgisbrot. Loks var ráð *yrir því gert, að íslenzku síldveiðiskipin létu gæzlustjóra í té fréttir, til þess að hann gæti auðveldlegar skipulagt sem bezt störf varðskipanna á síldveiðisvæðunnm. Þessi skipan landhelgisgæzlunnar yfir sildarvertíðina var alger nýbreytni, en áð- m- höfðu verið gerðar tilraunir með land- helgisgæzlu í sambandi við sildarleit úr flugvélum. Höfðu slíkar tilraunir verið hafnar fyrir síðustu lieimsstyrjöld, en féllu niður vegna styrjaldarinnar, þar til að henni lokinni. Eins og áður þá sökktu varðskipin nokkrum tundurduflum, sem fundust á siglingaleiðum umhverfis landið. 13. Skiptapar og slysfarir. Á árinu 1945 höfðu verið minni slysfarir á sjó en um mörg undanfarin ár. Á árinu 1946 urðu slysin fleiri, en þá drukknuðu hér við land 40 íslendingar, en auk þess fórust 4 af slvsförum um borð i skipum, eða alls 44 af slysförum á sjó. Er þetta 10 mönnum fleira en árið áður. Alls fórust 5 íslenzk fiskiskip og bátar hér við land á ár- inu og týndust 4 af þeim i hafi, en eitt sökk skammt undan landi. 3 erlend skip strönduðu bér við land á ár- inu og drukknuðu 3 menn af einu þeirra, en öllum skipverjum var bjargað af hinum. Björgunarsveitir Slysavarnafélags íslands björguðu samtals 70 mönnum þetta ár. Leitað var 36 sinnum á árinu til Slysa- varnafélags íslands, er íslenzk skip og bát- ar þurftu á hjálp að lialda, og er það held- minna en árið áður, en þá vara tala hjálpar- beiðna 43. Ritstjóri: Lúðvík Kristjánsson. RikisprentsraiSjan Gutenberg.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.