Ægir - 15.12.1959, Blaðsíða 18
16
ÆGIR — AFMÆLISRIT
Útgerö á Austurlandi
I marzblaðinu 1907 er bréf til Ægis frá
merkum útgerðarmanni á Austfjörðum.
Hann ræðir um útveg sinn á þessa leið:
Eins og þér er víst kunnugt, þá byrjaði ég
á útlialdi hér vorið 1882, þá félaus. Síðan hafa
verið mismunandi ár, en aldrei svo góð, að
nokkur verulegur afgangur hafi verið, enda
enginn rétt hjálparhönd, miklu fremur hitt.
Vond verzlun og annað fleira orðið til þess, að
maður liefur, þrátt fyrir bezta vilja og áfram-
lialdandi strit, staðið í sömu sporum. Þrátt
fyrir þetta lief ég aldrei getað séð ástæðu til að
liætta, því að við vitum allir, að nóg er í sjón-
um, ef lukkan er með og kjarkur ekki hilar.
„En liitt er satt, að súrnar í augunum“, kvað
Skarpliéðinn forðum, svo má nú segja, að sjá
útlend gufuskip hruna um firðina okkar með
livern farminn af öðrum og hrósa sér svo af
því, að svona margar þúsundir liafi þeir tekið
á stuttum tíma og við ekkert gert og ekkert
gelað. Þetta finnst okkur því ergilegra, sem
það gengur lengur. En sleppum þessu, það yrði
of Iangt mál og þessa leið ætlaði ég ekki; ég
ætlaði að skrifa þér um úthaldið mitt í sum-
ar eða útlialdstímann 190C. Ég hafði 1 mótor-
hát, liann byrjaði 27. maí og liætti C. október
Við úthaldið unnu 5 karlmenn, 4 stúlkur og 1
drengur.
Þetta fólk fékk í kaup............ kr. 2291,41
Fæði lief ég reiknað 20/— eða .. — 800,00
Salt brúkuðum við fyrir........... — 520,00
Færi o. fl. tapað og slitið....... — 408,20
Síld og frystigjald ................. — 509,50
14 tunnur af steinolíu............... — 378,00
153 pd. af vélaráburði .............. — 45,90
Samtals kr. 4953,01
0,35
0,25
0,75
1,00
72 róðra fórum við og fiskuðum
(þorska og ýsur).
Hlýra 31 virtir á kr.
Steinbítur 155 —--------
Lúður 174 —--------
Skata 1 —--------
Lifur 298G pottar 0,0G ....
Sundmagi 14C pd. 0,75 .......
Inn I 17855 pd. nr. 1 á 0,20
var 5516 — — 2 - 0,17
lagt I 6112 — ýsa - 0,14
Smáf. upp úr salti 5339 pd. á 0,10
Áætlaður fiskur í salti 15 skpd. ..
29382 fiska
kr.
10,85
38,75
130.50
1,00
179,16
109.50
2571,00
937,72
855,68
533,90
1500,00
Samtals kr. 7868,06
Nú er allt talið, sem báturinn hefur gefið af
sér í þá fjóra mánuði, sem úthaldið stóð, en til
kostnaðar er ótalið 15 kr. viðgerð á vél, renta
af verði bátsins og fyrning, og sú lijálp, sem ég
hef fengið við fiskverkunina liér heima, sem
er mikils virði. . . . Um útlit með næsta ár er
ekki hægt neitt að segja nema að út lítur fyrir,
að úthaldið aukist hér í firðinum að mun með
mótorbátum. ...
ísak Jónsson og íshúsin.
í sama blaði er minningargrein um ísak
Jónsson íshússmið, sem andaðist á miðju
ári 1906. Hann var 7 ár búsettur í Ame-
ríku og kynntist þar frystihúsarekstri.
Eftir að hann kom heim 1894 hafði hann
forgöngu um byggingu íshúsa víða um
land, en mest á Austfjörðum. I greininni
er vitnað í skýrslu um íshússtarfsemina
eystra eftir Axel Tulinius sýslumann og
kom hún í Isafold 25. jan. 1896. Þar segir:
Það eru ekki færri eu 8 íshús og frystiliús
ýmist upp komin eða í smíðum nú á Austfjörð-
um frá því i fyrrahaust — allt fyrir forgöngu
og eftir fyrirsögn ísaks Jónssonar, er þangað
kom í fyrra frá Ameríku (Winnipeg). ...
Þetta óvanalega fjör í nýjum framfara fyrir-
tækjum hér á landi er því að þakka, að þau 2
íshúsin, sem komin voru í gang fyrir sumar-
vertíðina eystra, hafa reynzt reglulegar gull-
kistur fyrir útvegsbændur þar og fiskimenn.
íshúsmál við Faxaflóa.
í aprílblaði s. á. er sagt frá aðalfundi
Ishúsfélagsins við Faxaflóa. Formaður fé-
lagsins, Tryggvi Gunnarsson, bankastjóri,
skýrði frá því, að árságóði þess væri 6730
kr. Um reksturinn á árinu segir svo í Ægi:
Á árinu var selt 100.000 pd. af kjöti, 2600
pd. af kjötpylsum, 2500 rjúpur og aðrir fuglar,
7000 pd. af laxi og silungi, 23.000 pd. af heilag-
fiski og talsvert af þorski og ýsu. Sild var fryst
230 tnr. til fiskbeitu handa þilskipunum og
seldar 355 smálestir af ís. ...
Hagur félagsins er þannig í góðu lagi og hinn
beini hagur félagsmanna mikill, en þó má telja
liinn óbeina liag bæjarbúa meiri, þar sem þeir
geta fengið nýtt kjöt o. fl. næstum árið um
kring fyrir tiltölulega lágt verð, en þó er eink-
um mest varið í þann aflaauka, sem þilskipin
fá fyrir það, að þau fá nýja og frysta síld um
mesta aflatímann.